Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Blaðsíða 64
Á VÍÐ OG DREIF
FRÁ HÁSKÓLANUM
Breytingar á lögum Háskólans og reglugerð.
Með lögum nr. 22 12/5 1969 voru gerðar allmiklar
breytingar á lögum háskólans nr. 60/1957. Breyttir þjóð-
félags- og atvinnuhættir bæði hér og erlendis hafa leitt
til þess, að mikil hreyfing hefur risið í þá átt, að tilhögun
náms í háskólum þyrfti að endurskoða í ljósi fenginnar
reynslu, og með þörf komandi ára i huga. Er hér nánast
um alheimshreyfingu að ræða, sem taka ber tillit til hér
sem annars staðar. Þelta umfangsmikla mál verður ekki
tekið til meðferðar, en rétt þykir þó að benda á nokkur
ákvæði hinna nýju laga, og þá helzt þau, er varða skipulag
háskólans og stjórn.
Um deildaskiptingu segir svo í 7. gr.: „1 Háskóla Islands
eru þessar deildir: guðfræðideild, læknadeild, lagadeild,
heimspekideild, verkfræði- og raunvísindadeild og við-
skiptadeild. Þegar þrír prófessorar verða skipaðir i tann-
læknisfræðum, getur menntamálaráðherra að fengnum
tillögum háskólaráðs og læknadeildar mælt svo fyrir, að
sérstök tannlæknadeild verði stofnuð.
Við Háskólann starfa rannsóknastofnanir samkvæmt
ákvörðun háskóladeilda og háskólaráðs og með samþykki
menntamálaráðherra og skulu þær að jafnaði heyra undir
háskóladeild. 1 reglugerð eða samþykktum má m. a. kveða
á um starfssvið stofnunar, stjóm hennar og tengsl við
háskóladeild og háskólaráð“.
Um kennara segir i 8. gr.: „Kennarar Háskólans eru
prófessorar, dósentar, lektorar, aðjúnktar, stundakenn-
arar og erlendir sendikennarar.
Dósentar og lektorar skulu vera þeir einir, sem hafa
kennslu og rannsóknir við Háskólann að aðalstarfi.
148
Tímarit lögfræðinga