Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Blaðsíða 62
efnið: „Erstatning for ideel skade“. UndirritaSur stjórn-
aði tveim fundum og ritari var Guðmundur Ingvi Sig-
urðsson hrl.
Oslóborg bauð til kvöldverðar i ráðhúsinu 13. ágúst.
Undirritaður var „skikkaður“ til þess að þakka af hálfu
gestanna. Hinn 14. ágúst munu, að ég ætla, allir Islending-
arnir hafa verið boðnir til miðdegisverðar á heimilum
norskra lögfræðinga. Ilinn 15. ágúst var lokahóf á Hotel
Bristol og Hotel Grand. Voru þar fluttar ræður, sungið
og dansað. Af gestanna hálfu þakkaði Bernt Hjejle, hr.
advokat, frá Danmörku.
Sérstök nefnd kvenna hafði með höndum léiðsögn og
skemmtun fyrir konur fundarmanna. Voru þar gefin
tækifæri til þess að skoða ýmsar lista- og menningarstofn-
anir í Osló, auk þess sem veitingar voru á takteinum.
Eins og sjá má af þessari stuttu frásögn og dagskránni
voru umræðuefnin margbreytileg þannig að hver og einn
hafði rúmt valfrelsi um þátttöku. Má ætla, að allir hafi
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ilinn þáttur þinganna er e. t. v. ekki núnna virði, en það
eru hin persónulegu kynni, sem skapast við óformlegar
umræður fundarmanna um efni á sviði laga og réttar al-
mcnnt og einkum þá með norræna réttarhefð í huga.
I lok þingsins þakkaði H. Honka, forseti finnska stjórn-
sýsludómstólsins norsku deildarstjórninni og öðrum,
sem hér áttu hlut að máli, ágætt starf við undirbúning
þingsins og skipulagningu þess. Hann bauð síðan til næsta
þings í Helsinki 1972, en þá eru liðin 100 ár frá fyrsta
þinginu, sem háð var í Kaupmannahöfn árið 1872.
Þess skal að lokum getið, að félagsmenn hér geta fengið
sérprent af framsöguerindunum hjá undirrituðum, en síð-
ar fá þeir þingtíðindin, þar sem birtar verða allar um-
ræður og skýrslur, auk framsöguerindanna. Gjald fyrir
þingtíðindin er kr. 200, sem er gjafverö. Nýir félagsmenn
njóta sömu aðstöðu.
Th. B. L.
146
Tímarit lögfræðinga