Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Page 33
Liður nr. 4 var auglýsing um húsnæði, sem hafði birzt
i ákveðnu dagblaði.
Liður nr. 5 var þannig skýrður, að stefnandi hefði óum-
deilanlega orðið að greiða fjárhæð þessa i hinu nýja leigu-
húsnæði fyrir tímabilið 15. ágúst til 8. október 1962.
Um síðasta kröfuliðinn, þ. e. nr. 6, sagði svo: „Stefn-
andi telur sig hafa orðið fyrir miklum óþægindum og
miska af völdum þessarar ólöglegu uppsagnar.
Stefnandi var búinn að skapa sér álits og virðingar, sem
balletskóli í húsi stefnda. Hann hafi auglýst ávallt undir
því nafni, og kennslukort nemendanna hafi verið í því
nafni.
Balletskólinn hafi verið mjög vel staðsetlur í húsnæði
stefnda og hafi foreldrar bama þeirra, sem skólann hafi
sótt, talið það mikinn kost, hve vel hann lá við strætis-
vagnaleið.
Einnig var skólinn eini balletskólinn í Vesturbænum og
bætt því úr brýnni þörf, hvað dansmennt Vesturbæinga
snerti.
Nú þegar balletskólinn flytur í nýtt hverfi, missir hann
marga af sínum gömlu nemendum og þarf að byrja á því
að nýju að skapa skólanum álit og virðingu“.
Af hálfu stefnda var því haldið fram, að leigusamning-
urinn um sal varnaraðila, hafi verið frá upphafi bundinn
tímatakmörkunum, þ. e. einungis gerður til vetrarins 1961
—1962. Hafi leiguréttur stefnanda því fallið niður er
kennslu var hætt um vorið og engin framlenging samn-
ingsins átt sér stað. Af hálfu stefnanda hafi að vísu verið
greidd leiga fyrir mánuðina júní, júlí og ágúst til gjald-
kera Steindórsprents, (en stefndi í málinu var húseignin
Steindórsprent h.f., sem var annað fyrirtæki). Fram-
kvæmdastjóri stefnda, hafi hins vegar eigi vitað um þessa
inngreiðslu, fyrr en síðar, og hafi aldrei komið annað til
en að leigan yrði endurgreidd og það jafnan boðið og
verið til reiðu. Því var og haldið fram af hálfu stefndu.
Tímarit lögfræðinga
117