Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Side 56

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Side 56
í gæzlu samtímis og sagðist telja, að þau hefðu verið 1— 6 ára gömul. Mótmælti hann því, að þrifnaði hefði verið áfátt hjá íbúum í íbúð hans. K. sagði ennfremur, að eng- inn hefði kvartað vegna barnagæzhmnar annar en stefn- andi málsins. Yfirleitt var framburður stefnda K. sam- hljóða framburði stefndu B. Stefnandi sagði m. a. fyrir dómi, að stefnda B. hafi haft á heimili sínu þrjú til átta börn samtímis á tímanum frá kl. 8,00 til 17,00 á daginn. Hann tók fram, að umgengni íbúanna i íbúð stefndu B. hefði verið mjög léleg. Gangar hefðu ekki verið þrifnir af hálfn íbúa þeirrar íbúðar. Stefnandi sagði fyrir réttinum, að hann vissi ekki örugg- lega, hve mörg börn væru nú hjá stefndu B., en áliti, að þau mundu vera um það bil fimm. Stefnandi kvaðst ekki geta sagt með vissu um aldur harnanna, en þau væru allt frá vöggubörnum upp í sex ára gömul. Stefnandi sagði og, að óhagræði það, sem hann liefði orðið fyrir, væri fólgið í hávaða og óþrifnaði á stigagangi. Sagði stefnandi, að lóðin væri notuð sem leiksvæði barnanna, og ennfremur, að barnavagnar hefðu verið settir inn á ganga hússins, en hann hefði sett þá út fyrir aftur. I málinu var lagt fram vottorð ritað í nafni barnavemd- arnefndar Reykjavíkur vegna kæru um, að stefnda B. ræki dagheimili fyrir börn á L.-götu 13. 1 vottorðinu sagði m. a., að eigi yrði séð, að kærurnar væru á rökum reistar. Þá var og lagt fram í málinu bréf frá borgarlækni til stefndu B. vegna sams konar kvartana og getið var í áðurnefndu vottorði og sagði í því bréfi, að kvartanir um óþrifnað virtust alveg ástæðulausar. 1 dóminum segir, að dómarinn hafi farið í íbúð stefndu B. þann 24. marz 1966 og þá hafi verið þar sjö börn. Eitt þeirra hafi verið barn stefndu í málinu, en hin i gæzlu hjá stefndu B. Ekki yrði séð, að ástæða væri til kvartana vegna óþrifnaðar. Kröfur stefnanda um hitakostnað voru fundnar út á þennan hátt: Hitareikningar skv. framansögðu kr. 8,388,81 140 Tímarit lögfræð'.nya

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.