Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Page 59
kanna, hvort aðrar málsástæður, sem fram koma í máls-
gögnum styðji kröfu stefnanda. 1 37. gr. laga um verndun
harna og ungmenna nr. 53/1966 og í XVIII. kafla heil-
brigðissamþykktar fyrir Reykjavik nr. 11/1950 er að finna
ákvæði um barnaheimili. Ljóst er, að stefnda B. hefur ekki
fengið ráðherraleyfi til að starfrækja slíkt heimili. Þá er
einnig ljóst, að ekki eru uppfyllt ákvæði heilbrigðissam-
þykktar fyrir Reykjavík, sbr. t. d. 210. og 218. gr. hennar.
Þess er hins vegar að geta, að vitað er, að það er all al-
gengt, að börn séu í atvinnuskyni tekin til gæzlu nokkur
saman í venjulegu íbúðarhúsnæði i Reykjavík. Verður að
tclja, að slík starfsemi sé heimil á grundvelli venju, þótt
lögboðin leyfi til að stofna og starfrækja barnaheimili séu
ekki fengin, ef um fá börn er að ræða og yfirvöld leggja
ekki með lögmætum hætti bann við starfseminni. Með
liliðsjón af þeiri grundvallarreglu, sem fram kemur í 1.
gr. reglna nr. 31/1963 her þó að telja, að starfsemi þessi
sé því aðeins heimil, að börnin séu ekki fleiri en fjögur.
Samkvæmt framanskráðu ber að fallazt á kröfu stefn-
anda, sem þykir eiga málsaðild hér að lútandi, á þann hátt,
að stefndu B. verði bannað, nema leyfi sé fengið að lögum,
að liafa samtímis í gæzlu í atvinnuskyni að L.-götu 13, ris-
hæð, fleiri börn en fjögur. Sem fyrr segir er stefndi K.
skráður eigandi risibúðarinnar í lnisi þessu, þótt stefnda
R. liafi hana nú til afnota. Þykir því rétt að dæma honum
óheimilt að leyfa, að húsnæðið sé notað til slíkrar starf-
semi, sem lýst var, sbr. tilvitnanir til laga nr. 20/1923 og
nr. 3/1878/
Dæma her stefndu til að greiða stefnanda in solidum
málskostnað, sem þykir hæfilega ákveðinn kr. 1,500,00 og
stefnda K. til að greiða stefnanda að auki málskostnað,
sem þykir hæfilega ákveðinn kr. 292,00. Dómsorðið var
því svohljóðandi:
„Stefndi K. greiði stefnanda Ó., kr. 136,61 . . .“ „Stefndu
B. er óheimilt, nema fengið sé leyfi að lögum, að hafa
samtímis í gæzlu í atvinnuskyni í risíbúð að L.-götu 13
Tímarit lögfræðinga
143