Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Qupperneq 5
t
GUNNARJÓNSSON
Hinn 10. desember 1973 andaSist í Reykja-
vík Gunnar Jónsson hæstaréttarlögmaður eft-
ir skamma sjúkdómslegu.
Gunnar var fæddur 9. febrúar 1916 í Reykja-
vík, en ættir hans stóðu í Rangárþingi. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík
1936 og lauk lögfræðiprófi 1941. Var árgangur
hans mikill lögfræðingaárgangur, en á árinu
1941 luku 9 stúdentar frá 1936 lögfræðiprófi,
sex að sunnan og 3 að norðan.
Kynni okkar Gunnars urðu fyrst í lagadeild-
inni, þar sem hann var nokkru yngri í skóla, en
við urðum kandidatar saman í ársbyrjun 1941.
— Gunnar hóf fljótlega eftir próf störf sem
fulltrúi á málflutningsskrifstofu Péturs Magn-
ússonar, Einars B. Guðmundssonar og Guðlaugs Þorlákssonar, og starfaði
hann þar nokkur ár og lagði góðan grundvöll að ævistarfi sínu, en málflutn-
ingsstörf stundaði hann sem aðalstarf æ síðan. Gunnar var við framhalds-
nám í afbrotafræðum (criminology) við Harvardháskóla 1946—1947, en setti
á stofn eigin málflutningsskrifstofu í Reykjavík eftir heimkomuna og rak hana
til dauðadags. Um það leyti tók hann einnig við kennslu í sjórétti við Stýri-
mannaskólann og annaðist þá kennslu um langt árabil. Er mér kunnugt um,
að Gunnari féll það starf vel og fór það vel úr hendi. Á árinu 1948 hóf Gunn-
ar störf hálfan daginn í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, og urðum við þar
samstarfsmenn. Þar starfaði hann rúman áratug eða allt þar til meðferð
ákæruvalds var skilin frá ráðuneytinu 1961, en að þeim málum hafði Gunnar
starfað einvörðungu, sem raunar féll að framhaldsnámi hans. Málflutnings-
störfum kaus hann samt að sinna áfram, og urðu þau hin síðari árin að fullu
aðalstarf hans. Öll störf Gunnars mótuðust sterklega af persónuleika hans,
en hann var mikill starfsmaður og féll ekki verk úr hendi. Gunnar var hið
mesta prúðmenni og óáreitinn, en lét ekki hlut sinn að þarflausu, þótt hann
mætti andstöðu, og er það góð skaphöfn málflutningsmanni. Létt var yfir
Gunnari í öllu fasi, og bar hann með sér röskleika sinn. Um skeið var Gunnar
i stjórn Lögmannafélags islands.
Gunnar var kvæntur Aðalheiði Sigurðardóttur, sem lifir mann sinn ásamt
þrem börnum þeirra uppkomnum: Eddu, sem er gift í Vestmannaeyjum, en
3