Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Page 19
Núgildandi ákvæði um gjafsókn er að finna í 11. kafla laga nr.
85/1936 um meðferð einkamála í héraði. Samkv. 2. tl. 172. greinar má
veita einstökum mönnum gjafsókn, sem eru svo illa stæðir fjárhags-
lega, að þeir mega ekki án fjár síns vera frá framfærslu sinni eða
sinna, eða frá atvinnurekstri sínum, er fara mundi til málsins. 1 grein-
argerð með lögunum er ekkert um það að finna, hvaða sjónarmið liggja
þarna að baki, en orðalag greinarinnar ber með sér, að hér er um
nokkurs konar náðarbrauð að ræða, sem sver sig í ætt við fátækra-
framfærslu og sveitarstyrk. Þetta tel ég rangt, og þetta sjónarmið
veikir gildi gjafsóknarinnar. Því ber að rýmka núgildandi ákvæði til
mikilla muna og miða við ákveðnar lágmarkstekjur og/eða lágmarks-
eignir.
Sá galli er á, að núgildandi ákvæði um gjafsókn ná ekki til upplýs-
ingaþjónustu lögfræðinga og annarrar aðstoðar, svo sem aðstoðar við
samningagerð, heldur kemur gjafsókn aðeins til greina, ef um mála-
rekstur er að ræða. Að þessu leyti má líkja ákvæðunum um gjafsókn
við það, að brú sé byggð, án þess að vegur sé að henni lagður. Ein-
staka maður, sem hefur lag á að þræða vegleysuna, getur notfært sér
brúna, en fæstir hirða um að standa í slíku.
Lögfræðiaðstoð erlendis
Mál það, sem hér er til umræðu, hefur eins og fyrr segir mikið verið
í sviðsljósinu erlendis síðustu árin. Verður nú í stuttu máli gerð grein
fyrir skipan þessara mála í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
1 Danmörku er starfandi „Studenternes retshjælp“, en það er sjálfs-
eignarstofnun, sem sett var á fót árið 1885, en núgildandi reglugerð
fyrir stofnunina er frá árinu 1969 (nr. 562).
Réttarhjálpin grundvallast á ólaunaðri þátttöku ca. 65 lögmanna,
en aðeins forstöðumenn og skrifstofufólk tekur laun fyrir sitt starf.
Réttarhjálpin fær fjárstyrk bæði frá einkaaðilum, sveitarfélögum og
frá danska ríkinu.
Rétt til þess að njóta þjónustu réttarhjálparinnar hafa allir, sem
hafa árstekjur undir 30.000 dönskum krónum og að auki 3000 krónur
fyrir hvert barn undir 18 ára aldri, svo og þeir sem eiga eignir undir
100.000 dönskum kr. Þetta eru þó aðeins viðmiðunarreglur, því að þau
tilfelli eru metin sérstaklega, þar sem umsækjandur fara fram úr
framangreindum mörkum um tekjur og eignir. Málsmeðferðin er þann-
ig, að sá, sem aðstoðar leitar, gerir í upphafi málsins grein fyrir
vandamálum sínum, og síðan er tekin af hálfu réttarhjálparinnar af-
staða til hinnar lögfræðilegu stöðu og hver næstu skref verði af hálfu
17