Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Side 23
fastar markalínur, sem miðaðar eru við ákveðna fjárhæð. Slík stofnun
yrði að hafa með höndum lögfræðilega upplýsingaþjónustu, auk að-
stoðar vegna málareksturs. Starfsfólk þyrfti að sjálfsögðu allt að
vera launað, því að ekki er hægt að ætlast til með nokkurri sann-
girni, að lögmenn eða annað starfsfólk vinni endurgjaldslaust fremur
en aðrir. Ég tel, að þessi leið hafi fiesta kosti fram yfir það fyrir-
komulag, sem byggt yrði upp á svipaðan hátt og sjúkrasamlögin.
Þeim leiðum, sem hér hefur verið lýst, fylgir því miður sá ókostur,
að hætt er við, að þjónusta sú, sem um ræðir, kæmi helst þéttbýlinu
og þá fyrst og fremst Faxaflóasvæðinu til góða, en landsbyggðin
yrði afskipt. Þar er um að ræða alvarlegt vandamál, sem þarfnast
skjótrar úrlausnar og verður tæpast leyst nema með frumkvæði hins
opinbera.
Eins og fyrr segir, er ekki við að styðjast neinar tölulegar upp-
lýsingar og rannsóknir varðandi efni það, sem hér um ræðir, að því
er Island varðar. Hér er því ekki um að ræða neina vísindalega skil-
greiningu á þörf almennings fyrir lögfræðiaðstoð eða samskiptum
fólks við lögfræðinga. Ef spjall þetta gæti orðið til að vekja upp
frekari umræður um málið, er tilganginum náð, enda er brýn nauð-
syn á heildarendurskoðun þessara mála á íslandi.
Heimildir þær, sem stuðst er við í grein þessari, eru af ýmsum
toga spunnar. Má þar nefna upplýsingarit frá stofnunum þeim í ná-
grannalöndunum, sem hafa með lögfræðiaðstoð án endurgjalds að
gera, greinargerðir með lögum um „fri retshjælp" á Norðurlöndum
ásamt blaða- og tímaritsgreinum um þetta efni. Þá má nefna bók
Norðmannanna Stále Eskeland og Just Finne „Rettshjelp" og grein
Hákonar Guðmundssonar um gjafsókn og ókeypis lögfræðiaðstoð (Elf-
ljótur 4. tbl. XII. árg.). Þess er að lokum að geta, að lögfræðiaðstoð
án endurgjalds var eitt af umræðuefnunum á 26. norræna lögfræðinga-
mótinu í Helsingfors í ágúst 1972. Umræðurnar eru ekki komnar út
á prenti, en greinargerð aðalframsögumannsins, Niels Th. Kjolbye
lögmanns frá Danmörku, var gefin út fyrir mótið. Kallast hún Rets-
hjælpens former og principper. Auk greinargerðar lögmannsins er þar
skrá um ýmis gögn um þetta málefni.
21