Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 26
Stjórn Lögfræðingafélags Islands 1972—3, talið frá vinstri: Jónatan Þórmunds-
son, Knútur Bruun, Hrafn Bragason, Þór Vilhálmsson, Stefán Már Stefánsson,
Skúli Pálsson og Hjalti Zóphóníasson (Ljósm.: Brynj. Helgason).
Dómstólakerfið og sérdómstólar (Björn Sveinbjörnsson, Ásgeir Friðjóns-
son, Auður Þorbergsdóttir og Ólafur W. Stefánsson) 15. nóvember.
Félagsfundur var 22. janúar til að fjalla um umsagnir um 3 mál, sem lágu
fyrir Alþingi og send höfðu verið þaðan til félagsins. Fundur var 29. janúar
um málefni opinberra starfsmanna og loks var fundur 12. júní um sama mál
sem fyrr segir, en til hans voru ríkisstarfsmenn einir boðaðir.
Stjórnarfundir voru 17. Á 4 þeirra voru einnig fulltrúar félagsins í fulltrúa-
ráði BHM, en á einum kjaranefnd félagsins. Á 2 fundum var samninganefndin
um kjör ríkisstarfsmanna ásamt félagsstjórninni.
3. Tímarit lögfræðinga.
Gerðar voru breytingar á tímaritinu, bæði á búningi og að nokkru á efnis-
vali. Theodór B. Líndal var ritstjóri eins og áður, en auk hans var Þór Vil-
hjálmsson ráðinn ritstjóri. Framkvæmdastjóri var Knútur Bruun, en afgreiðslu-
maður eins og áður Hilmar Norðfjörð. Ætlunin er, að ritið komi út 4 sinn-
um á ári.
4. Stjórnunarnámskeið.
var haldið í nóvember. Það var undirbúið í samráði við Stjórnunarfélag ís-
lands og styrkt af Háskólanum og Lögmannafélagi íslands. Framkvæmda-
stjórar voru Hjalti Zóphóníasson og Friðrik Sophusson.
5. Samvinna norrænna lagamanna.
Árlegur fundur starfsmanna norrænu lögfræðingasamtakanna var i Reykja-
vík 27.—28. ágúst og sátu hann 13 menn. Jafnframt var haldinn fundur í sam-
24