Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 29

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 29
stofnað til námskeiðs. Að þessu sinni varð fyrir valinu stjórnun. I samráði við Stjórnunarfélag islands var valið efni og fengnir fyrirlesarar. Námskeiðið var haldið í Lögbergi dagana 24.—29. nóvember sl. og fluttir voru 10 fyrirlestrar sem hér segir: Stjórnsýsla og stjórnun, söguleg þróun, Þórir Einarsson dósent. Hlutverk stjórnenda, sami fyrirlesari. Hvatning (motivation), 2 fyrirlestrar, sami fyrirlesari. Ákvörðunartréð, Guðmundur Magnússon prófessor. Stjórnskipulag (organisation), Þórir Einarsson dósent. Rafreiknar, Davíð Á. Gunnarsson verkfræðingur. CPM (aðferð hinna bundnu leiða), Egill Skúli Ingibergsson verkfræðingur. Stjórnun í opinberum rekstri, 2 fyrirlestrar, Ásgeir Thoroddsen hagsýslustj. Þátttakendur í námskeiðinu voru 36. Námskeiðið var styrkt af Lögmanna- félagi islands og Háskóla islands. Hjalti Zóphóníasson FRÆÐAFUNDUR Almennur félagsfundur var haldinn 15. nóvember s.l. Umræðuefnið var: Dómstólakerfið og sérdómstólar. Fundurinn var með nýju sniði, þar sem ekki var haldinn fyrirlestur, heldur voru frummælendur 4 og fluttu þeir stutt inngangsorð, hver um sitt atriði. Umræðum stjórnaði Björn Sveinbjörnsson hæstaréttardómari, sem jafnframt talaði fyrstur og ræddi dómstólakerfið í núverandi mynd og sérdómstóla, sem innan þess eru. Síðan ræddi Ásgeir Friðjónsson dómari um dóm í ávana- og fíkniefnamálum, Auður Þorbergsdóttir borgardómari um fyrirhugaðan tryggingadóm skv. 1. gr. laga nr. 96/1971 um breytingu á 6. gr. almannatryggingalaga nr. 67/1971, og loks Ólafur W. Stefánsson skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu um hugmyndir um umferðardómstól. í hinum almennu umræðum að loknu máli frummælenda tóku þátt: Gunnar Möller hrl., formaður tryggingaráðs, Árni Guðjónsson hrl., lögfræðingur Félags íslenskra bifreiðaeigenda, Stefán Már Stefánsson borg- ardómari, Björn Þ. Guðmundsson borgardómari, Þór Vilhjálmsson prófessor og umræðustjórinn, Björn Sveinbjörnsson. Þ.V. AÐALFUNDUR Þann 13. desember s.l. var aðalfundur Lögfræðingafélagsins haldinn í Lög- bergi (húsi lagadeildar). Formaður, Þór Vilhjálmsson, setti fund, en Hákon Guðmundsson yfirborgardómari var kjörinn fundarstjóri og Hrafn Bragason fundarritari. Formaður flutti skýrslu liðins starfsárs, og eru aðalatriði þeirrar skýrslu birt annars staðar í ritinu. Ragnar Aðalsteinsson hrl. flutti skýrslu af starfsemi BHM. Meginatriði skýrslu hans eru birt annars staðar í ritinu. Stefán Már Stefánsson ejaldkeri félagsins lagði fram endurskoðaða reikninga og skýrði þá. Kom fram, að fjárhagur félagsins hefur batnað á árinu og hafa innheimtur gengið betur en áður. Félagið er nú skuldlaust við BHM í fyrsta skipti í mörg ár. Miklar umræður urðu um skýrslur þessar og reikningana. Kom m. a. fram gagnrýni á þann hátt, sem um árabil hefur verið hafður á uppsetningu reikn- 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.