Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Page 32

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Page 32
an félaganna aukna aðild að samninganefndum þeirra við væntanlega sér- samninga. Fulltrúaráð BHM sambykkir með hliðsjón af þessu að fresta því að taka af- stöðu til aðildarumsóknar frá Félagi háskólamenntaðra starfsmanna stjórnar- ráðsins. Felur það stjórn BHM að undirbúa fyrir 1. þing BHM í nóvember 1974 tillögu, sem stefni að því að leysa til frambúðar vandamál starfshópa, sem hafa sameiginlegra hagsmna að gæta í sérsamningum, en tilheyra fleiri en einu aðildarfélagi BHM, t.d. með sérstakri aðild slíkra hópa að við- ræðum um sérsamninga. Aðild að BHM verði hins vegar áfram byggð á sameiginlegum menntunargrunni eða skólastigi." Af ofansögðu er Ijóst, að starf BHM hefur að undanförnu einkum beinst að kjaramálum ríkisstarfsmanna. Er það nú yfirlýst stefna stjórnar BHM, að þeim málum, sem almennari eru, verði betur sinnt framvegis, enda gefist þess kostur, þar sem kjarasamningar ríkisstarfsmanna séu nú í höndum launa- málaráðs. Meðal nýrra verkefna, sem nú er unnið að, er undirbúningur ráðstefnu um skipulag menntunar á háskólastigi, auk þess sem áfram verður unnið að hóptryggingarmálum, orlofsmálum o. s. frv. Fulltrúar Lögfræðingafélagsins í fulltrúaráði BHM á síðasta starfsári voru Bjarni K. Bjarnason, Hallvarður Einvarðsson og Ragnar Aðalsteinsson, en meðal stjórnarmanna BHM er Hrafn Bragason. Formaður stjórnar BHM er Markús Á Einarsson veðurfræðingur, en framkvæmdastjóri þess er Guðríð- ur Þorsteinsdóttir lögfræðingur. Ragnar A3a|steinsson KJARAMÁL RÍKISSTARFSMANNA í síðasta hefti var sagt frá störfum BHM að kjaramálum rikisstarfsmanna, uppsögn samninga, kröfugerð og samningafundum fram undir nóvemberlok. Hinn 6. desember s.l. boðaði sáttasemjari til fundar með samninganefndum ríkisins og BHM. Þegar í upphafi fundar kom fram, að hvorugur aðili hafði neitt nýtt fram að leggja. Skýrt var frá því á fundinum, að BSRB hefði sama dag lagt fram tilboð, sem fæli í sér mikla lækkun frá upphaflegum kröfum. Sáttasemjari boðaði enn til fundar með aðilum 14. desember s.l. Samn- inganefnd ríkisins skýrði frá því, að ríkið hefði boðið BSRB 7% hækkun launa upp í 14. launaflokk, en síðan jafna krónutölu. Samninganefndin kvaðst reiðu- búin að bjóða BHM sömu hækkun. Var því að sjálfsögðu hafnað. Formaður samninganefndar BHM lýsti því síðan yfir, að frekari umræður virtust vera gagnslausar og væri BHM því reiðubúið að reka málið fyrir Kjaradómi. Því var síðan lýst yfir af hálfu samninganefndanna, að samningaumleitunum væri lokið og deilunni vísað til Kjaradóms. Hinn 21. desembers.l. var málið þingfest fyrir Kjaradómi. Ragnar Aðalsteins- son hrl. flytur málið af hálfu BHM, en Þorsteinn Geirsson hrl. af hálfu ríkisins. Guðríður Þorsteinsdóttir Aðalkjarasamningar milli BSRB og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs var undir- ritaður 15. desember s.l., og er frá honum sagt á bls. 54. 30

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.