Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Síða 34
ORATOR
Stjórn Orators, félags laganema, skipuðu árið 1973 eftirtaldir menn: Þor-
steinn Pálsson, formaður; Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, varaformaður og ritstjóri
Úlfljóts; Steinunn Margrét Lárusdóttir, ritari; Ingibjörg Þórunn Rafnar, gjald-
keri, og Bjarni Ásgeirsson. Stjórnin var kjörin á aðalfundi 10. nóvember 1972
og sat fram til aðalfundar, sem haldinn var 8. nóvember 1973.
Starfsemi Orators hefur í rr.eginatriðum verið í nokkuð föstum skorðum
um allmörg undanfarin ár, og var svo enn s.l. ár. Helstu viðfangsefni félagsins
eru félagsfundir, málfiutningsæfingar, kennslumálefni og skemmtistarfsemi
ýmis konar. Samskipti við erlenda stúdenta og stúdentafélög eru all umfangs-
mikil, og í febrúarmánuði 1973 hófst fyrir alvöru undirbúningur fyrir XIX. Nor-
ræna laganemamótið, sem ráðgert er að haida í byrjun júni 1974.
Alls voru haldnir 11 félagsfundir á starfsárinu, og eru þá ekki taldir með
umræðufundir á eftir málflutningsæfingum og í vísindaleiðangri. Af þessum
11 fundum var einn hádegisverðarfundur og þrír voru almennir borgarafundir
um lögfræðileg efni. Stjórn félagsins tók þá ákvörðun að efna til almennra
borgarafunda til þess að gefa almenningi kost á að hlýða á og taka þátt í
lögfræðilegri umræðu um ágreiningsefni, er skjóta upp kollinum i þjóðfélag-
inu. Þannig var rætt um lögmæti Keflavíkursjónvarpsins og spurriinguna um
það, hvort Islendingar ættu að senda málflytjanda til Alþjóðadómstólsins í
Haag. Enn fremur var haldinn almennur fundur um frjálsar fóstureyðingar,
þar sem einnig voru reifuð sjónarmið læknisfræðinnar og guðfræðinnar að
því er þetta málefni varðar. Af öðrum fundarefnum má t. d. nefna störf hafs-
botnsnefndar Sameinuðu þjóðanna og mótun þjóðréttarreglna um 200 sjó-
milna fiskveiðilögsögu og réttarstöðu stjórnvalda gagnvart aðilum vinnu-
markaðarins.
Málflutningsæfingar voru að venju haldnar þrjár. Auk þess sá Orator um
þáttinn ,,Réttur er settur“ í sjónvarpinu. Til stóð að afnema þessa þætti með
öllu, en nú hefur verið ákveðið að halda þeim áfram eins og verið hefur.
Á starfsárinu kom út XXVI. árgangur Úlfljóts. Svo sem venja hefur verið
til, komu út fjögur tölublöð, alls um 430 blaðsíður. Auk fastra tölublaða Úlf-
Ijóts annaðist ritnefndin útgáfu tveggja fylgirita. Hið fyrra kom út með 2. tbl.
i því var birt meistaraprófsritgerð Jóns Ögmunds Þormóðssonar við laga-
skólann í Harvard. Nefnist greinin: Some Legal Aspects of the Conservation
of Fish Stocks in the North-East Atlantic Ocean. Seinna fylgiritið kemur
út með 4. tbl. og hefur að geyma ritgerð Páls Sigurðssonar dósents um tjón
af völdum skipa.
Hátíðisdagur Orators var haldinn föstudaginn 16. febrúar. Árdegis var mái-
flutningur og dómsuppsaga á bæjarþingi Orators. Síðdegis flutti prófessor
Þór Vilhjálmsson erindi f Norræna húsinu, er hann nefndi: Þættir úr sögu
stjórnsýslunnar. Þá heimsóttu laganemar borgarstjórann í Reykjavík, Birgi
Isieif Gunnarsson, og um kvöldið var fagnaður í Þjóðleikhúskjallaranum.
Heiðursgestur var Magnús Thoroddsen borgardómari.
Fulltrúar Orators sóttu formannaráðstefnur Norræna laganemaráðsins í
Uppsölum og Osló. Þá fóru fulltrúar félagsins á seminör í Gautaborg og
Lillehammer. I sambandi við 16. febrúar komu hingað í boði Orators fulltrúar
frá laganemafélögunum f Gautaborg og Osló. Þeir dvöldu hér í vikutíma. I
32