Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Síða 57
i kjarasamningi BSRB fengust alimiklar hækkanir frá núgildandi launa-
stiga. í kröfugerðinni var lögð megináhersla á að bæta kjör þeirra lægst
launuðu. Launaflokkar frá 7—9 voru sameinaðir 10. launaflokki, og er sú
hækkun, miðað við hámarkslaun, 24% í 7. Ifl., 18% í 8. Ifl. og 12% í 9. Ifl.
A'menna kauphækkunin í 10.—14. Ifl. er 7%, en þar fyrir ofan hækkar kaup
siðan um sömu krónutölu, þ. e. 2883 krónur hver launaflokkur.
Auk þess hækka síðan öll laun um 3% hinn 1. desember 1974 og þau
grunnlaun síðan aftur um 3% hinn 1. september 1975. Auk breytinga á
launastiganum voru gerðar allmargar breytingar frá fyrri samningi, og verð-
ur hér aðeins getið nokkurra þeirra.
í fyrsta sinn fengu nú ríkisstarfsmenn samningsrétt um orlof. Skemmsta
orlof er eins og áður 24 dagar, en verður 27 dagar við 10 ára starfsaldur
(áður við 15 ára starfsaidur), og við 20 ára starfsaldur lengist orlofið í 30
virka daga. Að minnsta kosti 24 orlofsdagar skulu veittir á sumarorlofstím-
anum. Sé hins vegar hluti af orlofinu tekinn að vetri, lengist sá hluti orlofsins
um 1/4. Áður hafði verið samið um sérstakt orlofsframlag, kr. 5.000, sem
greitt skal í þeim mánuði, er starfsmaður tekur orlof, og hækkar nú orlofs-
framlagið upp í kr. 10.000.
Mikillar óánægju hafði gætt frá siðustu samningum hjá þeim hópum vakta-
vinnumanna, sem áður fengu 12 frídaga á ári fyrir staðna hátíðisdaga, en
fengu í þeirra stað greiðslu á yfirvinnutaxta. Nú eiga þeir vaktavinnumenn,
sem vinna til jafnaðar 40 kist. á viku allt árið, rétt á að fá 12 daga fríið á ný.
Skulu einstök bandalagsfélög semja nánar um það í sérsamningum. Auk þessa
er veruleg hækkun á vaktaálagi þeirra, sem vinna á reglubundnum vinnuvökum.
Sú breyting var gerð á fyrirkomulagi kaffitíma, ef unnin er yfirvinna, að
kaffitímar eru þá fastákveðnir. Með því er skorið úr um ýmis vafaatriði varð-
andi framkvæmd á fyrri samningi. Kaffitímar þeirra, sem vinna á reglubundn-
um vinnuvökum, eru felldir niður, og þess í stað kemur 25 mínútna vinnu-
tímastytting eða yfirvinnugreiðsla á hverja vakt. Vaktavinnumönnum er þó
heimilt að neyta matar og kaffis á vaktinni, svo fremi að því verði við komið,
en hafa þó ekki sérstaka kaffitíma.
Samið var um nýjar reglur varðandi afleysingar, t. d. hvernig með skuli
fara, þegar undirmaður leysir yfirmann af í forföllum, en um þetta atriði voru
engin ákvæði áður og mjög á reiki með framkvæmdina. Einnig voru gerðar
nokkrar breytingar á ákvæðum um starfsaldur og starfsþjálfun.
Auk þessa má geta nýrra ákvæða varðandi ferðakostnað og sérstakar bók-
unar um viðurkenningu trúnaðarmanna á vinnustöðum og réttarstöðu þeirra,
en það hefur lengi verið baráttumál BSRB og aðildarfélaga þess. Loks var
í fyrsta skipti samið um kaup tímavinnufólks.
Gunnar Eydal
55