Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Blaðsíða 6
Félagslyndur maður var Guðmundur og tók virkan þátt í mótun og fyrstu
sporum Starfsmannafélags Útvegsbankans og Sambands íslenskra banka-
manna. Var hann fyrsti varaformaður Starfsmannafélags Útvegsbankans og
næstu ár ýmist í stjórn eða varastjórn félagsins. Hann var einnig í stjórn eða
varastjórn Sambands islenskra bankamanna fyrstu ár þess og starfaði í
ýmsum nefndum á vegum þess.
Kynni okkar Guðmundar hófust 1937, er ég gerðist starfsmaður Útvegs-
banka íslands h.f. og slðar lögfræðingur bankans. Féll mér strax vel við
þennan glaðlega og gáfulega mann. Þar var ekki hrokanum fyrir að fara. Var
óvenjulega gott til hans að leita, ef vanda bar að höndum við störfin í bank-
anum eða persónulega.
Ekki minnist ég þess, að okkur hafi nokkurn tíma orðið sundurorða þann
tíma, sem við störfuðum saman í bankanum. Er sllkt mjög sjaldgæft í svo
löngu samstarfi eða nálægt 20 árum.
Mun ég ávallt minnast Guðmundar sem sanngjarns og réttláts yfirmanns
og ágæts samstarfsmanns, sem var fús að leysa úr hvers kyns vanda og hafði
vilja og hæfileika til þess að ráða fram úr erfiðleikunum. Vináttu okkar, er
þróaðist er við fórum að kynnast, mun ég ávallt geyma í sjóði minninganna.
Guðmundur Ólafs kvæntist eftirlifandi konu sinni, Elínu, dóttur Magnúsar
heitins Sigurðssonar bankastjóra, hinn 12. nóvember 1932. Bjó hún manni
sínum og börnum smekklegt og fagurt heimili að Tjarnargötu 37 í eigin
húsnæði.
Var vinum og vandamönnum þeirra hjóna og dætranna ávallt vel fagnað
þar af mikilli gestrisni.
Þau Guðmundur og Elín eignuðust fjögur börn: Magnús, er dó nokkurra
vikna gamall 1933, Valgerði, sem gift er Magna Guðmundssyni tæknifræð-
ingi, Bergljótu, sem er gift Ólafi Björgvinssyni tannlækni, og Ástríði, sem er
ógift í foreldrahúsum.
Jafnframt því, sem ég þakka Guðmundi ógleymanlegar samverustundir,
sem aldrei bar neinn skugga á, sendi ég eiginkonu hans, dætrum og öllum
eftirlifandi ættingjum og venslamönnum þeirra, mlnar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Þormóður Ögmundsson
60