Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Blaðsíða 35
teljist „kostnaður af flutningi málsins beinlínis, hæfilega metinn eða
eftir samningi aðila.“
Þá meginreglu er að finna í 1. mgr. 177. gr. einkamálalaganna, að
sá sem máli tapar í öllu verulegu, skuli dæmdur til að greiða gágnaðila
sínum málskostnað. 1 þessari reglu felst visst skaðleysissjónarmið, á
þá leið að „sigurvegari“ máls eigi að fá málskostnað sinn greiddan úr
hendi gagnaðila. Reglan sætir reyndar nokkrum undantekningum og tak-
mörkunum. T.d. getur dómari skv. 178. gr. skipt málskostnaði milli að-
ila eða látið hann falla niður með öllu, ef vei'uleg vafaatriði eru í máli.
Og með hliðsjón af fyrrgreindum 7. tl. 1. mgr. 175. gr. verður að telja,
að dómara beri að meta, hver sé hæfileg fjárhæð málflutningsþóknunar
þeirrar, er hann dæmir öðrum málaðila úr hendi hins. Þetta þýðir, að
ekki er nóg, að málsaðili sanni fyrir dómara, hve háa málflutningsþókn-
un hann þurfi í raun og veru að greiða lögmanni sínum. Hafi aðilinn
samþykkt að greiða hærri þóknun en „hæfilég“ telst, getur hann að-
eins fengið gagnaðilann dæmdan til að greiða sér þann hluta þóknunar-
innar, sem dómarinn telur hæfilegan. Að því er varðar 7. tl. i.f. skal því
skotið hér inn, að það er áreiðanlega afar sjaldgæft að málsaðilar semji
um kostnað af málflutningi.
ÞYÐING LÁGMARKSGJALDSKRÁR L.M.F.I.
Islenskir lögmenn taka gjald af skjólstæðingum sínum eftir reglum
lágmarksgjaldskrár LMFl, nema þeir hafi löglega samið um annars
konar gjaldtöku. I skránni eru reglur um gjaldtöku fyrir margvísleg
störf lögmanna og þar á meðal fyrir málflutningsstörf. Gjaldskrá þessi
Eins og frá er sagt á öðrum stað í þessu hefti,
héldu Lögmannafélag íslands og Dómarafélag
íslands málþing 4. júní s.l. um „Verðbólguna
og lögin“. Grein sú eftir Jón Steinar Gunnlaugs-
son, er hér birtist, er byggð á framsöguerindi
hans á málþinginu. Fyrst eru settar fram nokkr-
ar almennar athugasemdir, en þá rætt um gjald-
skrá lögmanna. Síðan er fjallað um áhrif verð-
bólgu á höfuðstól krafna, kröfur vegna útlagðs
kostnaðar og loks á kröfur til dæmds máls-
kostnaðar.
89