Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Blaðsíða 44
ob Sigurðsson, svaraði ýmsum íyrirspurnum og gerði nokkra grein fyrir þeim
tilboðum, sem borist höfðu í hug- og vélbúnað. Afstaða stjórnarinnar til þess-
ara mála er sú, að nú hafi verið sinnt nauðsynlegu undirbúningsstarfi innan
félagsins og að rétt sé að áhugasamir félagsmenn taki við. Þeim standi þá til
boða gögn þau, er tölvunefndin hefur safnað, og nokkur grein hefur verið
gerð fyrir hér. Stjórnin mun þannig ekki hafa frekari bein afskipti af þessum
málaflokki að sinni.
Nú kemur reglulega út á um 2ja mánaða fresti Fréttabréf á vegum félagsins.
Í því birtist efni, er varðar lögmenn sérstaklega, t.d. úrskurðir og álitsgerðir
stjórnarinnar, sem talið er að hafi almennt gildi fyrir lögmenn. Fréttabréfið í
þessu formi er góður tengiliður félagsins við hinn almenna félagsmann og
sjálfsagt að halda útgáfu þess áfram.
Húsnæðið að Álftamýri 9 hefur að sjálfsögðu gert félagsstarf auðveldara. S.l.
haust var gengið frá hluta kjallara og er þar nú hin vistlegasta fundaaðstaða.
í nóvember og fram í desember fór þar fram sveitakeppni [ bridge og í janú-
ar var haldið skákmót L.M.F.Í. Nýlokið er tvimenningskeppni í bridge. Þessi
starfsemi hefur mælst vel fyrir hjá lögmönnum.
Það hefur lengi verið Ijóst, að lögmönnum, eins og öðrum sérmenntuðum
aðilum, er þörf á endurmenntun. Lögmenn vinna vandsöm og ábyrgðarmikil
störf, og nauðsyn ber til að menn fylgist vel með og bæti við þekkingu sína.
Áður hafa vissulega verið haldnar hinar merkustu námsstefnur á vegum fé-
lagsins, en nýja húsnæðið gerir félaginu kleift að færa út kvíarnar í þessum
efnum.
í nóvember s.l. stjórnuðu þeir Helgi V. Jónsson, hrl., og Skúli Pálsson hrl.,
námskeiði í skattarétti við góðar undirtektir félagsmanna. Námskeið í vátrygg-
ingarétti undir umsjón Arnljóts Björnssonar prófessors var haldið í mars og
apríl.
Á vegum L.M.F.Í. var efnt til námsferðar til Kaupmannahafnar í mars 1982.
Var sú ferð fjölmenn og þótti takast mjög vel. I maí s.l. var önnur námsferð
farin til Bandaríkjanna, nánar tiltekið til Washington og New York. Um 30
lögmenn tóku þátt f ferðinni, þar af sumir með maka.
Störf stjórnarinnar hafa verið með líku sniði og undanfarin ár. Á þessu
starfsári hafa þó verið gerðar tilraunir með aukið félagsstarf, eins og rakið
hefur verið. Undirtektir félagsmanna hafa verið góðar.
Kaup félagsins á Álftamýri 9 og ráðning framkvæmdastjóra f fullu starfi
hafa að sjálfsögðu breytt allri aðstöðu stjórnarinnar og möguleikar á aukinni
þjónustu við félagsmenn hafa stóraukist.
Þrátt fyrir aukin umsvif og kostnað, sem þeim hefur fylgt, verður að telja
að hagur félagsins sé allgóður.
Jóhann H. Níelsson, hrl., baðst undan endurkosningu, en ( stað hans var
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. kosinn formaður. Garðar Garðarsson hdl. vék
úr stjórninni. Auk formanns eiga nú sæti í stjórninni Skúli J. Pálmason hrl.,
Þórður S. Gunnarsson hrl., Hallgrímur B. Geirsson hdl. og Gísli Baldur Garð-
arsson hdl.
Jóhann H. Níelsson
98