Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Blaðsíða 54
Frá
Lögfræftingsifélagi
íslands
SKÝRSLA FORMANNS Á AÐALFUNDI
16. DESEMBER 1982
Síðasti aðalfundur var haldinn 17. des. 1981 og voru þá kjörin í stjórn auk
mín, Guðrún Erlendsdóttir varaformaður, Baldur Guðlaugsson, Logi Guð-
brandsson, Ólöf Pétursdóttir, Pétur Kr. Hafstein og Þorgeir örlygsson. Á
fyrsta stjórnarfundi 30. desember var Pétur Kr. Hafstein valinn til gjaldkera-
starfa, Þorgeir Örlygsson var kjörinn ritari, en Ólöfu Pétursdóttur var falin
framkvæmdastjórn Tímarits lögfræðinga. Ritstjóri tímaritsins hefur á árinu
verið Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari.
Á starfsárinu gekkst félagið fyrir sjö fræðafundum, sem hér skulu nú taldir;
þ. 28. jan. var fundarefni „Bótaskylda án sakar“ og var framsögumaður Arn-
Ijótur Björnsson, prófessor. 25. febrúar var fundarefni „Hvernig gæti lagasafn
framtíðarinnar litið út?“ og voru framsögumenn þeir Björn Þ. Guðmundsson
prófessor, Helgi V. Jónsson hæstaréttarlögmaður og Björn Friðfinnsson fjár-
málastjóri Reykjavíkurborgar. Þ. 25. mars var fundarefni „Hugleiðing um end-
urskoðun siglingalaga." Frummælandi var dr. Páll Sigurðsson, dósent. Þ. 19.
apríl var fundarefni „Um afrétti og almenninga." Frummælandi var dr. Gaukur
Jörundsson prófessor. Þ. 9. september var haldinn sameiginlegur fundur laga-
deildar og Lögfræðingafélagsins. Fyrirlesari var dr. Paul Szölösy frá Sviss og
ræddi hann um efni er hann nefndi „The standard of compensation for per-
sonal injury“. Þ. 25. október ræddi Magnús Thoroddsen hæstaréttardómari
um Mannréttindasáttmála Evrópu.
Þeir fundir sem ég hefi nú nefnt voru allir haldnir að Lögbergi í kennslu-
stofu 101, en síðasti fræðafundurinn á starfsárinu var haldinn að Borgartúni 6
þ. 9. desember. Sá fundur var opinn almenningi og hafði dr. Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra og formaður stjórnarskrárnefndar þar framsögu um
stjórnarskrármálið.
Auk þessara fræðafunda gekkst félagið fyrir málþingi, sem haldið var að
Fólkvangi á Kjalarnesi 2. október 1982, og var efni þingsins „Bótaábyrgð
sjálfstætt starfandi háskólamanna." Á málþinginu hafði Benedikt Sigurjónsson
frv. hæstaréttardómari framsögu um bótabyrgð lögmanna, Logi Guðbrandsson
hrl. um ábyrgð lækna, Óttar Örn Petersen hrl. um ábyrgð ráðgefandi verk-
fræðinga, tæknifræðinga og arkitekta, Ragnar Aðalsteinsson hrl. um ábyrgð-
artryggingu sjálfstætt starfandi háskólamanna, en að lokum dró Arnljótur
Björnsson prófessor saman nokkrar niðurstöður af umræðum dagsins. Á mál-
108