Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Síða 8

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Síða 8
kom andstæðingum oft að óvörum I málflutningi sínum. Hinu mun menn ekki alltaf hafa áttað sig á, að kappræður þessar lutu oft sfnum eigin lögmálum og Jón, sem og sumir aðrir, lét ýmislegt flakka, sem ekki var alvarlega meint. Jón átti vini í röðum andstæðinga jafnt sem samherja á hverju sem gekk, enda var hann fljótur að skipta um gervi að hætti góðra leikara. Á þessum árum tók Jón að safna bókum um þjóðfélagsmálefni, einkum iögfræði. Hefur hann gert nokkra grein fyrir bókum sínum og söfnun þeirra [ tímaritinu Bókaorminum. Lagði hann mikið kapp á að bækur sínar væru vel með farnar og helst [ upprunalegu bandi eða góðu skinnbandi. Sótti hann fast bókauppboð Sigurðar Benediktssonar á háskólaárum sfnum eins og fleiri laganemar. Var þá oft kapp í mönnum að ná í fágætar bækur, og hefur hann sagt skemmtilega frá því, er hann hreppti Handbók fyrir hvern mann fyrir kr. 7.000,— en Pétur heitinn Benediktsson bauð í á móti honum. Daginn eftir fór Jón í bankann og bað Pétur um víxillán fyrir andvirðinu. Þótt Pétri þætti þetta óskammfeilni af Jóni, mun hann í aðra röndina hafa haft gaman af, því að hann veitti Jóni víxillánið og bauð honum í hádegisverð á Hótel Borg. Lögfræðibækur sínar ánafnaði Jón Lögmannafélagi islands eftir sinn dag. Af þessu má sjá, að Jón fékk fljótt mikinn og alhliða áhuga á lögfræði. Næst lögfræði munu alþjóðastjórnmál hafa átt hug hans. Sat hann fjölmarg- ar ráðstefnur og fundi á erlendum vettvangi og sat í stjórnum fjölþjóðasam- taka. Sótti hann og námskeið í Bandaríkjum um þessi efni og ritaði fjölda greina um þau. í stjórn Varðbergs, félags áhugamanna um vestræna samvinnu, var hann um skeið. í flokkspólitík fylgdi hann Sjálfstæðisflokknum að málum og gegndi hann trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Síðasta áratuginn sem hann lifði lét hann stjórnmál ekki til sín taka opinberlega. Að loknu embættisprófi í lögfræði gerðist Jón fulltrúi borgarstjórans í Reykjavík og gegndi því starfi til 1969, er hann stofnaði lögfræðiskrifstofu þá, sem hann rak til dauðadags. 1969-70 var hann jafnframt lögmannsstörfum framkvæmdastjóri Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Már Pétursson hér- aðsdómari í Hafnarfirði kemst svo að orði um lögmannsstörf Jóns í minning- argrein, er hann ritaði í Morgunblaðið 21. júní s.l.: ,,Það hefur verið sagt með réttu að mál vinnist aldrei á góðum málflutningi, en lögmenn geti tapað málum vegna lélegs málflutnings. Þetta viðhorf var Jóni víðs fjarri. Mér er nær að halda að fyrir hafi komið að hann ynni mál sem fæstir aðrir hefðu unnið og varla hafa tapað málum sem margir aðrir hefðu unnið. Og þótt Jón yljaði stundum andstæðingum sínum undir uggum og mörg vinnustund dómara færi í að greiða úr flækjum sem hann hafði und- ið upp, var Jón maður vinsæll bæði meðal lögmanna og dómara. Það gerði bæði stíllinn yfir íþrótt hans og þær stundir er hann létti geð manna utan veggja réttarsalarins. Sinn þátt mun það hafa átt í sérkennilegum málflutn- ingi Jóns, að menn sem áttu torsótt mál að sækja eða erfið að verja, en voru sjálfir trúaðir á málstað sinn, leituðu gjarna til hans, stundum eftir að hafa gengið bónleiðir til annarra lögmanna. Jón sá gjarna leið þar sem öðrum höfðu virst sundin lokuð. Skarpskyggni hans, bjartsýni og baráttugleði stuðl- aði þannig að því að fleiri en ella fengu dómstólaprófun á sfn mál og þar með þá réttarvernd sem löggjöf vor og ólögfestar starfsskyldur lögmanna gera ráð fyrir.“ 62

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.