Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Qupperneq 10
PÉTUR AXEL JÓNSSON
Pétur Axel Jónsson hdl. var fæddur hér í borg
þann 31. mars 1938, sonur hjónanna Ástríðar
Einarsdóttur og Jóns Axels Péturssonar, síðast
bankastjóra. Ég kynntist Jóni Axel nokkuð, hann
var merkismaður og lét gott af sér leiða á
mörgum vettvangi, vel greindur maður, kraft-
mikill og skapríkur.
Pétur Axel varð stúdent 1959 en kandídat f
lögfræði snemmsumars 1968, hóf þegar í stað
störf við fógetarétt Reykjavíkur. Þar hófust
kynni okkar og urðu þau mér til ánægju.
Það er enginn vafi á því að Pétur Axel átti
auðvelt um nám, en ég ímynda mér að hann
hafi lengi vel tekið laganámið heldur léttilega
og eftir þeim reglum er sjálfur setti. Hann
hvarflaði iðulega frá bóklestri til þátttöku í ýms-
um greinum atvinnulífsins í landinu. En ég leyfi mér að halda þvf fram að
hann hafi fengið sér þá heildarsýn yfir lögfræði að verið hafi með því besta
sem gerist hjá nýútskrifuðum kandídat, — en það vitum við allir að er hægar
ort en gert, fagið er nú þannig, og háskólakennslan sömuleiðis svo langt sem
hún annars nær.
Þegar Pétur Axel Jónsson hóf störf hjá fógetaréttinum, kominn rakleitt frá
græna borðinu, var ekki annað að sjá en honum væru flestallir hlutir Ijósir
sem líklegir eru til að koma upp á við fógetagerðir, — hann var einhvern-
veginn alveg með á nótunum eins og maður segir. Margt bar til: hann var
harðgreindur maður og fljótur að átta sig og hafði óbilandi sjálfstraust á hverju
sem gekk, — og kom nú ekki hvað síst að góðu haldi að hann hafði verið úti
á vinnumarkaðnum með fólkinu og hafði aflað sér staðgóðrar þekkingar á
praktisku viðskiptalífi, — sýnu nánari en gengur og gerist um nýútskrifaða
lagamenn.
En Pétur Axel var ekki sá sem kærir sig um að lifa og starfa undir annarra
leiðsögu og stjórn. Hann vildi fara sfnu fram, sjálfur vera hugsuður og smiður
þess, er fram við hann skyldi koma, engum standa reikningsskil nema sjálf-
um sér, ramur einstaklingshyggjumaður í öllum sfnum viðhorfum. Hann var
alltof stórlyndur maður til annarskonar Iffsstíls, — stórlund hans kom fram
jafnt og þétt, það var ekkert smátt við hann. Hann var höfðingi að allri gerð,
— svo miskunnsamur maður að ég veit þess fá dæmi, og sást þar ekki fyrir,
— ugglaust hefur og stórlyndi hans komið fram ef honum mislfkaði, þess er
að vænta. Mér er nær að staðhæfa að hann hafi ekki verið meðalmaður f
nokkra átt.
Pétur Axel Jónsson var hár maður vexti, karlmannlegur og hraustmenni,
sérlega viðfeldin manngerð, — Reykvíkingur af lífi og sál, hlýr f lund, gladdist
með glöðum og grét með hryggum, kunni vel við sig með fólki, hverrar stéttar
64