Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Síða 24

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Síða 24
ávarp til konungs og bað hann að bjarga heiðri Danmerkur og viður- kenna frelsi landsmanna. Ávarpinu lauk með beiðni til hátignarinnar að þrýsta ekki þjóðinni til að leita þeirra ráða er örvæntingin gefur. Þann 21. marz fóru Kaupmannahafnarbúar í fjöldagöngu að Kristjánsborg- arhöll. Einn af leiðtogum þjóðfrelsismanna, L.N. Hvidt, las ávarp Kasí- nófundarins fyrir konungi. Hann svaraði, að hann hefði þegar veitt ráðuneytinu lausn. Daginn eftir tóku fjórir þjóðfrelsismenn sæti í nýju ráðuneyti, marzráðuneytinu svokallaða. Þeir voru: Monrad, Lehmann, Tscherning og Ilvidt. Þetta var bylting — í dönskum stíl. Voru nú orðin á skjót umskipti. Hið nýja ráðuneyti lét hendur standa fram úr ermum að semja stjórnarskrá fyrir konungsríkið Danmörku. Aðalhöfundur hennar var Ditlev Monrad, guðfræðingur og kennslumálaráðherra í marzráðuneytinu. MONRAD OG JÚNÍSTJÓRNARSKRÁIN Monrad (1811-1887) vakti fyrst á sér athygli er hann kvaddi sér hljóðs á fundum þjóðfrelsismanna eftir 1889 og með bæklingum sem hann gaf út undir nafninu Flyvende politiske Blade. Þegar í fyrsta bækl- ingnum er ljóst, að Monrad byggir sínar fræðilegu forsendur næstum algjörlega á þýzka heimspekingnum G.W.F. Hegel, en einnig á frönskum höfundum sem héldu fram hugmyndum frönsku byltingarinnar. Monrad lítur á ríkið sem skynsemina í þjóðfélaginu, sem það afl er sameinar borgarana til sameiginlegra átaka og stendur því gegn hinum sundur- virku öflum hins borgaralega þjóðfélags. Það er ríkið sem sameinar menn í eina þjóð, sem leitast við að viðhalda samræmi milli þjóðar og ríkisstjórnar. Ríkið sameinar stéttir og hagsmuni. Það er ríkið sem sér til þess að lög og tilskipanir séu á rökum reist, svo að borgararnir geti séð að það er skynsamlegt að hlýða þeim af fúsum og frjálsum vilja. Monrad tekur það upp eftir Hegel að segja, að frelsið sé grunnhugmynd Evrópu. Það táknar þó ekki, að öll Evrópuríki séu frelsið holdi klætt, heldur að þróunin stefnir í átt til meira og sannara frelsis. Hið ótak- markaða einveldi er áfangi á þessari leið. Það hefur í sér fólgna hug- myndina um lögbundna stjórn sem beri að varðveita einingu ríkisins. Um skeið kom þessi hugmynd fram í einveldisríkinu. I þessu ríki hafa komið fram andstæður, sem valda því að hugmyndin hlýtur að brjótast fram í breyttu formi. Þannig kallar einveldið á ritskoðun og á það að kúga menn til hlýðni, eining ríkisins splundrast vegna þjóðernatog- streitu og héraðarígs, stéttir vinna að þröngum sérhagsmunum. Því hlýtur ríkið að taka stakkaskiptum og finna ný form, svo að það geti 78

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.