Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Síða 29

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Síða 29
var eitur í beinum hægri manna, og konungur skeytti engu um þingið, er hann útnefndi ráðherra eftir kosnirigasigur Vinstri manna 1872, en þá fengu þeir meiri hluta í neðri deild. Um haustið 1873 neituðu Vinstri menn að samþykkja fjárlög til 2. umræðu. Konungur rauf þá þing, en vinstri menn héldu meirihluta sínum í kosningum í nóvember 1873. Hægri menn horfðu upp á framsókn Vinstri manna með ugg og ótta. Þeir síðarnefndu voru nefnilega þessi óupplýsti hrái massi, sem Monrad taldi á sínum tíma að mikið lægi við að ekki kæmust til áhrifa í ríkinu. Og hægri mönnum fannst auðsýnt, að vinstri menn myndu grafa undan forréttindum, völdum og áhrifum aðals og stóreignamanna ef þeir kæm- ust til valda. 1 júní 1875 var J.B.S. Estrup gerður að forsætisráðherra. Hann hóf valdaferil sinn með því að rjúfa þing og við kosningar 1876 fékk Vinstri flokkurinn 74 sæti af 102 í neðri deild (Folketing). Árið 1877 varð ekki samkomulag um fjárlög í þinginu. Málið dróst á langinn og engin fjárlög voru tilbúin 31. marz, en fjárlagaárið hófst 1. apríl. Þann 4. apríl var þjóðþingið sent heim, og þann 12. apríl voru gefin út bráðabirgðafjárlög fyrir fjárlagaárið 1. apríl 1877 til 31. marz 1878 samkvæmt heimildum í 49. og 25. gr. stjórnarskrárinnar. Er skemmst frá því að segja að í 19 ár var Estrup einræðisherra Danmerkur með Kristján konung 9. að bakhjarli og á grunni nefndra greina í stjórnar- skrá. Vinstri menn þvældust fyrir, en tókst ekki að skipuleggja neina einbeitta andstöðu gégn ólögunum. Loks þegar gengið var til kosninga árið 1901 fengu hægri menn 8 þingsæti í neðri deild (Folketing), vinstri menn 76, sósíaldemókratar 14. Hægri menn gáfust þá upp, og konung- ur bað lögfræðing nokkurn, J.H. Deuntzer að mynda stjórn. Deuntzer var ekki þingmaður en verkefni hans var að mynda stjórn sem nyti stuðnings þingsins. Þetta þóttu mikil viðbrigði, og voru atburðir þess- ir kallaðir „systemskiftet". I fyrsta sinn í sögu Danmerkur settist. bóndi í ríkisstjórn, Ole Hansen, sem varð landbúnaðarráðherra. Systemskiftet táknaði þó ekki að þingræði væri innleitt í Danmörku. Það gerðist ekki fyrr en eftir páskaatburðina 1920. Konungur vék þá frá minnihlutastjórn án þess þingið hefði samþykkt vantraust á hana. Hin eiginlega ástæða var sú, að íhaldsmönnum fannst vonlítið, að minni- hlutastjórn þessi gæti komið gegn um þingið stj órnarskrárbreytingu sem nauðsynlég var vegna innlimunar norður Slésvíkur í danska ríkið, og fannst hún hafa staðið sig illa á friðarráðstefnunni í París. Stj órnin styðst ekki við þjóðarvilja, sagði konungur, fyrirskipaði kosningar og skipaði embættismannastjórn. Stjórn þessi hrökklaðist þó fljótt frá völdum þegar allsherj arverkfall vofði yfir. Bráðabirgðastjórn sem flokkarnir komu sér saman um leysti upp þingið, og er það kom saman 83

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.