Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Side 42

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1983, Side 42
Félagsmönnum hefur fjölgað nokkuð frá síðasta aðalfundi eða alls 15, enda hefur það verið starfsregla að taka alla á félagaskrá, sem fengið hafa útgefin leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi, enda séu þeir ekki bundnir af reglum dómsmálaráðuneytisins frá 1971 um skyldu til deponeringar. Einnig hefur verið reynt að fylgjast með þeim aðilum, sem leyst hafa til sln deponer- uð leyfi og hafa þeir jafnóðum verið teknir inn á félagaskrá. Það hefur oft verið tilviljanakennt hverjir hafi lent inn á félagaskrá L.M.F.Í. og hverjir ekki. Stjórninni er Ijóst að hagir manna eru mismunandi og ekki stunda allir fé- lagsmenn bein lögmannsstörf. Skynsamlegt gæti því verið að fá viðbót við reglurnar frá 1971 og heimila fleirum, en þar greinir, að deponera leyfum sínum og það tekið fram hverjar réttarverkanir slíkar deponeringar hefðu. Einum stjórnarmanna, Jóni Steinari Gunnlaugssyni, var falið að kanna þetta mál sérstaklega og koma fram með tillögur til breytinga á málflutningslögun- um ef með þyrfti. Bíður áframhaldandi starf í þessum málum næstu stjórnar. Eins og undanfarin ár hafa stjórnarfundir verið haldnir reglulega hvern mið- vikudag, nema yfir hásumarið og um stórhátíðir. Alls hafa verið haldnir 42 stjórnarfundir og 294 málsatriði bókuð. Eins og oft áður hefur mestur hluti starfstíma stjórnarinnar farið í afgreiðslu kæru- og ágreiningsmála, er fyrir hana haía verið lögð. Alls bárust 24 slík mál frá síðasta aðalfundi, sem er svipað og undanfarin ár, en 1981 bárust 28 kærumál, 22 árið 1980, 26 árið 1979 og 19 árið 1978. Mál þessi voru mis- jafnlega umfangsmikil, en afgreiðsla þeirra hefur verið með þeim hætti, að úrskurðir hafa verið kveðnir upp i 5 málum, 6 mál voru afgreidd með álits- gerðum, 3 voru afturkölluð, 8 felld niður og enn er 2 málum ólokið. í upphafi starfstíma þessarar stjórnar lágu fyrir 8 mál, sem ekki hafði ver- ið lokið afgreiðslu á. Meðferð þessara mála var með þeim hætti, að úrskurð- ur var kveðinn upp í einu máli, eitt var afturkallað, 2 álitsgerðir voru gefnar og 2 mál felld niður. 2 mál eru enn í ótilteknum fresti með fullu samþykki málsaðila, þar til lesyt hefur verið úr ágreiningi þeirra í millum fyrir Flæsta- rétti. Enginn af úrskurðum stjórnarinnar hefur verið kærður til Flæstaréttar. Á síðasta starfsári hafa eins og áður starfað reglulega gjaldskrárnefnd, laganefnd og kjaranefnd. Mestur tími laganefndar hefur farið í að fara yfir og gefa umsagnir um ýmis lagafrumvörp, þingsályktanir og þess háttar. Um- sagnir laganefndar hefur stjórnin bæði sent hlutaðeigandi, í sínu nafni, nú síðast álit varðandi endurskoðun stjórnarskrárinnar, sem sent var Alþingi og öllum þingflokkunum, og einnig hafa umsagnirnar verið sendar beint í nafni laganefndar. Kjaranefndin hefur m.a. unnið að tillögum til stjórnarinnar varðandi fyrir- komulag á ákvörðun þóknunar fyrir réttargæslustörf. Tillögum þessum, að mestu óbreyttum, hefur nú verið komið á framfæri við dómsmálaráðuneytið og eru nú f gangi viðræður við ráðuneytið um þær. Er óhætt að segja að ástæða sé til bjartsýni um nokkuð farsælan framgang þessara mála, án þess þó að unnt sé á þessu stigi að fullyrða nokkuð um endanlegan árangur. Til- lögur þessar gera í stuttu máli ráð fyrir ákveðinni lágmarksþóknun fyrir rétt- argæslustörf og sfðan viðmiðunartaxta fyrir hvern unninn tfma. Viðmiðunin gerir ráð fyrir þóknun fyrir mót auk hæfilegs álags. 96

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.