Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Qupperneq 51

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Qupperneq 51
mati of langt gengið, jafnvel þótt ástæða væri til að gera ríkari kröf- ur til háttsemi veitingahúsaeigenda með tilliti til þeirrar starfsemi sem fer fram hjá þeim. Varðandi það atriði að handriðið hafi verið í samræmi við byggingar- reglugerð er það almennt viðurkennt, að dómstólar geti gengið lengra í kröfum um varkárni í háttsemi aðila heldur en fram kemur í lögum og reglugerðum.6 Ákvæði um háttsemi manna í settum lögum og reglugerðum eru oft þannig úr garði gerð að þau hafa í huga hin venjulegu tilvik. Af því leiðir að ekki verður talið rétt að binda sakar- matið við þá háttsemi sem fram kemur í lögum eða reglum, a.m.k. ekki þegar um er að ræða sérstakar aðstæður. Næst er að athuga háttsemi 0, sem fólgin var í því að setjast upp á handriðið og sveifla fótunum. Telja verður ljóst að góður og gegn maður sest ekki upp á handrið þar sem fallhæð er tæplega 4 m. Að auki var handriðið úr sívalri krómpípu tæplega 4 sm í þvermál, þannig að sýnilega var erfitt að halda jafnvægi á handriðinu. Þó að 0 hafi verið undir áfengisáhrifum, þegar slysið varð, og af þeim sökum með sljórri dómgreind en ella, verður ekki tekið tillit til þess við sakar- matið, enda áfengisneysla alfarið á áhættu tjónþola.7 Verður gáleysi hans ekki talið minniháttar þegar litið er til þess að hættan á falli af handriðinu var augljós, svo og að góðum og gegnum mönnum á að vera fullljóst að hættulegt getur verið að setjast upp á handrið hvar sem þau eru og hvernig sem þau eru. LOKAORÐ Eins og fram kom hér á undan er að mínu mati fulllangt gengið hjá meirihluta Hæstaréttar að fella alla bótaábyrgðina á V. Niðurstöðu minnihlutans og héraðsdóms verður að telja eðlilegri þar sem báðir aðilar hegðuðu sér gáleysislega og ekki fullnægjandi rök til þess að meta sök annars meiri en hins. Niðurstöðu meirihluta Hæstaréttar verður að túlka á þann hátt að gera eigi mjög ríkar kröfur til veitingahússeigenda varðandi umbúnað á veitingahúsum. Slíkar kröfur eru þá væntanlega rökstuddar með því að gestir séu í misjöfnu ástandi vegna ölvunar og að veitinga- húsaeigendum beri að taka tillit til þess. Jafnframt mætti nefna að 6 Arnljótur Björnsson, bls. 59. 7 Sjá hér Hrd. 1969:180. 257
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.