Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Page 63
Um þetta efni fluttu erindi Hrafn Bragason hæstaréttardómari, Helgi I.
Jónsson sakadómari, Rúnar Guðjónsson sýslumaður og Þorsteinn Geirsson
ráðuneytisstjóri.
Sýnilegt þótti að kosta mundi töluvert fé að koma breytingunum í kring,
en þegar það hefur verið gert ætti dómskerfið ekki að vera kostnaðarsamara
að neinu verulegu marki en verið hefur hingað til.
Lögð var þung áhersla á nauðsyn þess að fjárveitingavaldið tryggi nægi-
legt fé til framkvæmda þannig að þær megi takast sem best og ná tilætluðum
árangri. Um þetta var samþykkt svohljóðandi tillaga:
„Aðalfundur Dómarafélags íslands haldinn 5. og 6. október 1989 beinir
þeim eindregnu tilmælum til Alþingis að það tryggi sem fyrst nægilegt fjár-
magn til þess að hrinda í framkvæmd með myndarbrag þeim breytingum á
dómstólaskipuninni sem ákveðnar voru með lögum nr. 92/1989 um aðskiln-
að dómsvalds og umboðsvalds í héraði.“
Þá flutti Stefán Már Stefánsson prófessor erindi um íslenska dómstóla á
alþjóðavettvangi og þær breytingar er kunna að verða á stöðu dómsvaldsins
vegna breytinga innan Efnahagsbandalagsins og væntanlegra samninga Efta-
ríkjanna við það.
Þingforseti fyrri daginn var Friðjón Guðröðarson sýslumaður, en seinni
daginn Ólöf Pétursdóttir héraðsdómari.
Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa: Friðgeir Björnsson yfir-
borgardómari, formaður; Halldór Kristinsson sýslumaður og bæjarfógeti; Har-
aldur Henrýsson hæstaréttardómari; Pétur Kr. Hafstein sýslumaður og bæjar-
fógeti; Valtýr Sigurðsson borgarfógeti.
F. h. stjórnar Dómarafélags íslands
Friðgeir Björnsson
269