Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Blaðsíða 14
í mannréttindasáttmála Evrópu og gera verði kröfu um að þau séu virt,
sérstaklega nú þegar fjötrar einræðis eru að falla af Evrópuþjóðum og ný rfki
eru að bætast í Evrópuráðið; aðildarríkjunum hefur fjölgað ört undanfarin
misseri og eru nú orðin 32. Eru öll fyrrverandi Varsjárbandalagsríki komin í
ráðið fyrir utan Sovétríkin, en tvö fyrrverandi lýðveldi þess, Litháen og
Eistland, eru orðin aðilar. Verið er að fjalla um aðild Lettlands. Albanía er á
biðlista ásamt með ýmsum fyrrverandi lýðveldum Sovétríkjanna, þar verður
vandinn mestur við töku ákvarðana varðandi umsókn Rússlands. Raunar hefur
Evrópuráðsþingið ekki enn treyst sér til að taka meginafstöðu til þess, hvar
eigi að draga austurlandamæri Evrópu. Deilan snýst meðal annars um það,
hvort gera eigi ráð fyrir að Kákasuslýðveldin svonefndu, Georgía, Armenía
og Azerbaijdan, geti orðið aðilar að ráðinu.
Grundvallarréttindin
Hver eru þessi grundvallarréttindi, sem Evrópuráðsríkin hafa sameinast um
að verja\og nefnd eru í 1. kafla mannréttindasáttmála Evrópu? Þau eru:
Réttur til lífs og bann við dauðarefsingu.
Bann við pyntingum og ómannúðlegri eða niðurlægjandi meðferð eða
refsingu.
Bann við þrældómi og nauðungarvinnu.
Réttur til frelsis og mannhelgi.
Réttur handtekins manns til vitneskju um ástæður fyrir handtöku og hverjum
sökum hann er borinn.
Réttur handtekins manns og gæsluvarðhaldsfanga til að koma fyrir dómara
og til dómsmeðferðar innan hæfilegs tíma.
Réttur handtekins manns og gæsluvarðhaldsfanga til að bera
frelsisskerðinguna undir dómstól.
Réttur þess sem sætt hefur handtöku eða gæsluvarðhaldi til skaðabóta.
Réttur til að fá réttláta og opinbera meðferð máls fyrir sjálfstæðum og
óvilhöllum dómstóli innan hæfilegs tíma.
Réttur til að dómstóll fjalli um ágreining í einkamálarétti og sakamál.
Réttur sakbornings til að teljast saklaus uns sekt hans er sönnuð.
Lágmarksréttindi sakbomings:
Tafarlaus vitneskja uni eðli og orsök kæru.
Nægur tími og aðstaða til varnar.
Réttur til að halda uppi vömum sjálfur eða með aðstoð verjanda að
eigin vali.
Réttur til ókeypis lögfræðiaðstoðar ef þörf krefur.
Réttur til að spyrja eða láta spyrja vitni.
Réttur til ókeypis aðstoðar túlks.
Bann við afturvirkni refsilaga.
12