Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Blaðsíða 54
Norrænt dómaraþing
Norrænt lögfræðingaþing var haldið í Kaupmannahöfn 18. til 20. ágúst. Svo
sem venja er var í tengslum við þingið haldið norrænt dómaraþing og fór það
fram þann 17. ágúst. Stjórn danska dómarafélagsins sá um undirbúning
þingsins en formenn félaganna höfðu lagt grunninn að dagskrá er þeir hittust
í Wiesbaden.
Á þinginu var tekið fyrir efnið: Samband dómstóla og stjórnsýslu. Fluttu
fulltrúar allra landanna erindi um efnið en af hálfu íslands kom það í hlut
formanns. Að framsöguerindum loknum voru pallborðsumræður. Þingið sóttu
um 60 dómarar þar af 5 frá Islandi.
Heimsókn formanns danska dómarafélagsins
Á stjórnarfundi Dómarafélags íslands þann 4. mars 1993 var samþykkt að
bjóða Claus Larsen, formanni Dómarafélagi Danmerkur hingað til lands á
vegum félagsins. Rétt þótti að miða heimsóknina við þau tímamót þegar hinir
nýju dómstólar, sem settir voru á stofn með réttarfarsbreytingunni 1. júlí 1992,
hefðu starfað í eitt ár. Tilgangur stjórnarinnar var að hafa frumkvæði að
umræðu um stöðu dómstólanna í héraði, innra fyrirkomulag þeirra og afköst.
Claus Larsen þekktist boðið og kom hann ásamt Agnete konu sinni til landsins
miðvikudaginn 7. júlí.
Claus Larsen hefur starfað sem forstöðumaður dómstólsins (administrerende
dommer) á Friðriksbergi. Þá hefur hann um 5 ára skeið verið formaður
Dómarafélags Danmerkur. Ferð þessa bar upp á merk tímamót í lífi, þar sem
honum var nokkrum dögum fyrir ferðina tilkynnt að hann hefði verið skipaður
dómsstjóri Borgardóms Kaupmannahafnar frá 1. september 1993 þegar N. C.
Bitsch lét af störfum fyrir aldurs sakir. Samtímis lét Claus Larsen af störfum
sem formaður dómarafélagsins þar sem venja mun vera að sami maður gegni
ekki báðum þessum stöðum í senn.
Tími sá sem gestimir dvöldu hér var vel nýttur. Claus Larsen heimsótti fyrst
Héraðsdóm Reykjaness þar sem dómstjórinn Ólöf Pétursdóttir tók á móti
honum ásamt nokkrum dómurum. Voru húsakynni dómsins skoðuð og síðan
var tekið til við að ræða skipulag dómstólsins og rýnt í tölur um málafjölda
og afköst. Að lokinni þeirri heimsókn var haldið í Hæstarétt íslands þar sem
varaforseti réttarins Hrafn Bragason tók á móti gestum og skýrði frá
starfseminni. Viðstaddir voru flestir hæstaréttardómaranna ásamt Stefáni Má
Stefánssyni prófessor sem sat fundinn sem meðlimur réttarfarsnefndar.
I Héraðsdómi Reykjavíkur tók dómstjórinn Friðgeir Bjömsson á móti
gestum ásamt nokkrum dómurum og skrifstofustjóra dómsins Sigurði Tómasi
Magnússyni. Var þar skipst á skoðunum um margvísleg málefni. Hafði Claus
Larsen margs að spyrja um réttarfar, reglur um skipun dómara, fjárveitingar
til dómsins o. fl.
Claus Larsen heimsótti síðan Héraðsdóms Vesturlands þar sem Hervör
52