Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Page 53
viðkomandi landa og kannar raunverulegt sjálfstæði dómsvaldsins. í einu
slíkra tilvika, þ. e. varðandi umsögn Slóveníu, kom í ljós að dómarar þar í
landi mæltu með að umsókninni yrði hafnað enda runnin undan rifjum
ríkisstjómarinnar sem ætlaði með aðild að félaginu að sýna fram á heilbrigt
dómsvald í landinu þegar að því kæmi að leita aðildar að Evrópubandalaginu.
Forseti Alþjóðasamtaka dómara er Philippe Abravanel frá Sviss.
Fundur Evrópudeildar samtakanna var haldinn í tengslum við þingið en þar
eiga sæti dómarar frá löndum Evrópubandalagins. Evrópsku dómaramir utan
bandalagsins voru áheymarfulltrúar á þinginu. Forseti deildarinnar er Reiner
Voss, formaður Dómarasambands Þýskalands. A þeim fundi kom fram að
aukin tengsl eru milli félagsins og ýmissa deilda Evrópubandalagsins. Til
gamans má geta þess að daganna 26. til 28. ágúst sl. var haldin á vegum
Evrópuráðsins ráðstefna í Reykjavík um félagafrelsi. Hrafn Bragason sótti
ráðstefnuna í nafni Alþjóðasamtaka dómara og gerði formaður grein fyrir
ráðstefnunni og niðurstöðum hennar á fundinum í Sao Paulo. Hins vegar kom
ekki boð frá dómsmálaráðuneytinu til Dómarafélags íslands um þátttöku en
þess ber að geta að hana sóttu um 100 manns.
SEND (Samarbetsorganet för efterutbildning av nordiska domare.)
Stjórn SEND hefur að því er virðist gefist upp á að tilkynna félaginu um
starfsemi sína og er það ef til vill skiljanlegt þegar til þess er litið að félagið
hefur aldrei átt þess kost að taka þátt í störfum SEND vegna fjárskorts. Þegar
litið er til starfsemi dómarafélaga í nágrannalöndum okkar má sjá að
endurmenntun dómara er þar ofarlega á blaði. Starfsemi SEND er aðeins hluti
af því viðantikla starfi sem þar á sér stað. Það er mjög miður að við skulum
ekki hafa borið gæfu til að taka þátt í þessu starfi en fullyrða má að
endurmenntun íslenskra dóntara sé lítil og ómarkviss. Það væri verðugt
verkefni næstu stjórnar að komast inn í starf SEND og taka þátt í því af alefli.
Valtýr Sigurðsson sat aðalfund Dómarafélags Danmerkur 6. og 7. október.
Evrópudeild Alþjóðasamtaka dómara hefur um skeið unnið að gerð
grundvallarreglna um stöðu dómara í Evrópu. Stjóm Dómarasambands
Þýskalands bauð til fundar sem haldinn var þann 20. mars sl. í Wiesbaden í
Þýskalandi. Valtýr Sigurðsson sótti fundinn af hálfu Dómarafélags íslands.
Þar tókst að ná samkomulagi um orðalag og markmið. Nánari grein er gerð
fyrir þessu máli í 3. hefti tímaritsins, bls. 182-184. A þinginu flutti Merz,
forstjóri Deutscher Richterakademie í Trier, erindi um deild fyrir Evrópurétt
sem stofnuð hefur verið við akademíuna. Hér er um viðamikla námskrá að
ræða sem íslenskir dómarar ættu að kynna sér nánar. Með EES samningnum
er þeim tryggður réttur til þátttöku í námskeiðum á vegum deildarinnar.
Forstjórinn benti á að margar þjóðir hefðu tryggt sér fyrirfram tiltekinn
þáttökurétt í námskeiðum akademíunnar og gæfist síðan dómurum viðkomandi
ríkis færi á að sækja um þátttöku.
51