Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Page 69

Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Page 69
skipaði nefndarmenn án tilnefningar; ef skipa ætti þriggja manna nefnd starfandi dómara yrðu aðal- og varamenn 12 1/2% af dómarastéttinni; dómarar verði sjálfir að setja þessa nefnd á stofn og bera ábyrgð á henni; þá þyrfti að líta til verkefnanna; ekki væri fært að veita aganefnd vald til að víkja dómara frá um stundarsakir, slíkt gengi ekki stjómskipulega; huga þurfi að breytingum, taka valdið af ráðherra; sjálfstæði dómstóla verði aldrei fullkomið ef ráðherra geti vikið dómara frá. Ólöf telur að drögin þyrfti að vinna betur, er Pétri Hafstein sammála og vill gera hans orð að sínum; staða dómstjóra sé óljós, nógu erfið nú og skýrist ekkert af meirihlutaálitinu; samkvæmt því eigi áminning að sæta kæru til aganefndar, en ef dómstjóri fái áminningu sé hún ekki kæranleg; þetta þurfi að endurskoða. Ólöf spyr í hvaða farvegi málið sé. Hrafn segir ákvæði um agamál og úrlausn þeirrar verða í frumvarpi að dómstólalögum; álitið sé til endurskoðunar hjá réttarfarsnefnd. Fundarstjóri beinir því til nýrrar stjómar að boðað verði til sérstaks fundar u agamálin. Um stöðu dómara í Evrópu Steingrímur Gautur gerir grein fyrir reglum um stöðu dómara í Evrópu sem unnið er að um þessar mundir á vegum Evrópudeildar Alþjóðasambands dómara, sbr. greinargerð um það efni í 3. hefti tímaritsins, bls. 182-184. Skýrsla stjórnar Formaður bendir á, að skýrslu stjórnar hafi verið dreift ásamt reikningum félagsins og telur því ekki ástæðu til að lesa hana. Hann býður Skúla Pálmason velkominn í stétt dómara og minnist látinna félagsmanna, Magnúsar Þ. Torfa- sonar, Þórðar Björnssonar, Jónasar Gústavssonar og Péturs Þorsteinssonar. Sigríður Ingvarsdóttir gjaldkeri kveðst svara fyrirspumum. Reikningamir eru bomir undir fundinn og samþykktir samhljóða. Inngöngubeiðni Ragnheiðar Bragadóttur, dómarafulltrúa við Héraðsdóm Reykjavíkur er samþykkt einróma. Formaður getur þess að komið hafi í Ijós að dómsmálaráðuneytið, sem er einn þriggja aðila dómaraþings, sýni undirbúningi og þáttöku í þinginu takmarkaðan áhuga. Hann varpar fram þeirri spurningu hvort eigi að láta nægja að halda dómsmálaþing annað hvert ár þannig að Dómarafélagið og Sýslumannafélagið gætu þá efnt til tveggja daga funda það ár sem dómsmálaþing væri ekki haldið; þá mætti halda fundi Dómarafélagsins úti á landi, hvar sem væri. Steingrímur lýsir sig mótfallinn þessari hugmynd og Olafur Börkur Þorvaldsson, héraðsdómari á Austurlandi segir hana ekki frá sér komna. Hann segist telja að aðalfundur mætti vera lengri en 4 klst. og að ef sýslumenn vilji halda dómsmálaþing annað hvert ár, muni hann ekki andmæla því. 67

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.