Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Síða 11
Friðgeir Björnsson
er dómstjóri í Reykjavík
Friðgeir Björnsson:
BANDARÍKJAFERÐ
I. INNGANGUR
Síðastliðið haust gafst mér kostur á að fara í fjögurra vikna ferð til Banda-
ríkjanna og heimsækja héraðsdómstóla í fimm borgum í jafnmörgum ríkjum
þeirra. Tilgangur ferðarinnar var fyrst og fremst sá að kynnast starfsemi dóm-
stóla á héraðsdómsstigi. Sótti ég heim dómstólana í Fíladelfíu í Pensylvaníu,
Portland í Maine, Portland í Oregon, Alburquerque í Nýju Mexikó og Jackson-
ville í Flórída. Einnig heimsótti ég „National Center for State Courts“ í
Williamsburg í Virginíu.
Stofnun að nafni Independence Foundation kostaði ferðina, en hún var
skipulögð af annarri stofnun, Eisenhower Exchange Fellowship Inc. Hafa þær
báðar aðsetur í Ffladelfíu og hófst ferðin þar. Fjölmargir íslendingar hafa farið
í ferðir til Bandaríkjanna sem stofnanir þessar hafa kostað og skipulagt, sem
og annarra þjóða menn. Tveir aðrir íslendingar voru í heimsókn á vegum
þeirra á sama tíma og ég.
Ætlun mín er sú að gera hér á eftir nokkra grein fyrir ýmsu því sem fyrir
augu og eyru bar en rétt er að taka strax fram, sem fljótlega kemur í ljós við
lesturinn, að hér er ekki um fræðiskrif að ræða, miklu fremur brotakennda
frásögn ferðalangs.
II. ALRÍKISDÓMSTÓLARNIR
Dómstólakerfið í Bandaríkjunum er æði flókið og ekkert áhlaupaverk að fá
nasasjón af því, hvað þá að átta sig á því til nokkurrar hlítar. Of skammur
tími var til stefnu til þess að mér tækist hið síðamefnda, en nokkra hugmynd
fékk ég þó um meginþætti kerfisins. Flækjumar eiga m.a. rót sína að rekja
til þess að um tvenns konar kerfi er að ræða, annars vegar alríkisdómstólana
og hins vegar dómstóla hvers rflds. Þá er dómstólakerfið nokkuð mismunandi
5