Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Blaðsíða 21
Hús Þjóðarmiðstöðvar ríkjadómstólanna í Williamsburg
Eitt af því sem dómstólamiðstöðin hefur tekið sér fyrir hendur er að setja
héraðsdómstólunum stefnumið (Trial Court Performance Standards), en þessi
vinna var skipulögð og stjórnað af 13 manna nefnd. Lauk nefndin störfum í
júlí 1990. Þessi stefnumið eru eftirfarandi:
1. Dómstólarnir stjórna meðferð dómsmála og annarri starfsemi sinni, sem
snertir almenning, með opnum hætti.
2. Húsnæði dómstólanna er öruggt, aðgengilegt og þægilegt í notkun.
3. Allir sem mæta fyrir dómstólunum hafa tækifæri til þess að taka virkan
þátt í því sem fram fer án þess að vera beittir óþarfa stífni eða óþægindunt.
4. Dómarar og aðrir starfsmenn dómstólanna eru kurteisir og bregðast vel
við erindum almennings og sýna virðingu öllum sem þeir hafa samskipti
við.
5. Kostnaður við aðgang að þinghöldum og þingbókum, -hvort heldur um
er að ræða fé, tíma eða þær reglur sem fylgja ber-, er innan skynsamlegra
marka, sanngjam og þannig að menn hafí efni á.
6. Dómstólamir halda málatíma innan viðurkenndra marka, sem þeir ákveða,
og gæta þess jafnframt að afgreiða mál jafnóðum og þau berast.
7. Dómstólarnir leggja fram skýrslur og upplýsingar samkvæmt fyrirfram
gerðum áætlunum og svara greiðlega beiðnum um upplýsingar svo að
þær komi að tilætluðum notum.
15