Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Blaðsíða 57
í fjórða hluta náms skal stúdent ljúka prófi í níu kjörgreinum og semja
ritgerð eða ljúka sambærilegu lokaverkefni, auk þess að Ijúka æfingum í
úrlausn raunhæfra verkefna með fullnægjandi árangri. Fyrir hver áramót
ákveður lagadeild að minnsta kosti átján kjörgreinar til kennslu á einstökum
misserum á næstu tveimur háskólaárum.
Kennsla í hverri kjörgrein fer fram á einu misseri. Samhliða vali á
kjörgreinum skal stúdent einnig velja svið til ritgerðar eða lokaverkefnis og
einn af kennurum deildarinnar sem umsjónarkennara í því námi, en valið skal
háð samþykki kennarans og deildarforseta. Stúdent getur ekki lokið ritgerð
eða öðru lokaverkefni nema hann hafi áður staðist próf í minnst sex
kjörgreinum.
Til að standast próf í lagadeild þarf stúdent að hljóta minnst einkunnina 6,0
í hverri grein um sig en 7,0 í almennri lögfræði ásamt ágripi af réttarsögu.
Ný reglugerðarákvæði um námsskipan taka til stúdenta sem hófu laganám
haustið 1992.
4. STÖÐUBREYTINGAR.
Davíð Þór Björgvinsson, dósent, sem kennt hefur sifjarétt undanfarin ár
hætti störfum hjá lagadeild í nóvember 1993.
5. STJÓRN ORATORS, FÉLAGS LAGANEMA, STARFSÁRIÐ 1993-
1994.
Stefán Eiríksson formaður, Eyvindur G. Gunnarsson varaformaður, Kristján
B. Thorlacius gjaldkeri, Gísli Tryggvason ritstjóri Úlfljóts, Jónína S.
Lárusdóttir funda- og menningarmálastjóri, Kristín Helga Markúsdóttir
skemmtanastjóri og Edda Andrésdóttir alþjóðaritari.
Gunnar G. Schram
deildarforseti
SKÝRSLA UM LAGASTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS 26. FEBRÚAR
1993 - 28. febrúar 1994
Starfslið
Þessir kennarar voru í fullu starfi við Lagstofnun 1993-1994: Amljótur
Bjömsson, Bjöm Þ. Guðmundsson, Gunnar G. Schram, Jónatan Þórmundsson,
Magnús Kjartan Hannesson, Markús Sigurbjörnsson, Páll Sigurðsson, Ragn-
heiður Bragadóttir, Sigurður Líndal, Stefán Már Stefánsson og Þorgeir Örlygs-
son.
51