Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Side 13

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Side 13
alríkisstjómin er sóknaraðili og málum sem varða brot á ákvæðum stjómarskrár eða alríkislaga. Má þar sem dæmi nefna jafnréttismál kynja og kynþátta. Ennfremur í málum sem erlend ríki eða sendimenn erlendra ríkja eiga hlut að og ákveðnum tegundum mála eins og gjaldþrotamálum og málum vegna siglinga (admiralty cases). Þá hafa alríkisdómstólamir lögsögu í þeim málum þar sem aðilar eru búsettir í sitt hverju ríkinu og kröfur nema hærri fjárhæð en 50.000 dollurum. Þegar einstök ríki fara í mál hvert við annað eru þau mál höfðuð fyrir alríkisdómstólunum. Þá er hægt að áfrýja til áfrýjunar- dómstólanna ákvörðunum stjómvalda, s.s. umhverfisvemdarráðs og skrifstofu einkaleyfa. í þeim tilvikum að málsókn er byggð á ákvæðum stjómarskrár eða alríkislaga er hvort heldur hægt að höfða mál fyrir alríkisdómstóli eða ríkisdómstóli. Svo getur sýnst að nokkuð sé handahófskennt hver mál það eru sem lögsaga alríkisdómstólanna nær til, en á því eru þær sögulegu skýringar, að lögsagan, þótt hún hafi tekið breytingum í tímans rás, byggðist í upphafi á pólitískri málamiðlun á milli norður- og suðurríkjamanna sem náðist eftir langa togstreitu eins og fyrr var greint frá og setur hún enn mark sitt á hana. Afrýjunardómstólamir endurskoða einungis lagaatriði en ekki sönnun. Flest þau mál sem undir lögsögu alrfkisdómstólanna falla eru einkamál. Dómarar í alríkisdómstólunum eru um 1500 talsins og árlegur málafjöldi um 1,5 milljónir. Stjóm alríkisdómstólanna er í höndum sérstaks 27 manna ráðs „The Judicial Conference of the United States" undir forsæti forseta Hæstaréttar Banda- ríkjanna. A vegum ráðsins starfa fjölmargar nefndir með mismunandi verksvið. Þetta ráð er nokkurs konar dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og kemur dómsmálaráðherra „Attomey General“ þar lítt við sögu. Þá heyrir undir ráðið „Administrative Office“, sem svarar til dómsmálaráðuneytis. Ennfremur „The Federal Judicial Center“, sem annast rannsóknir og endurmenntun á vegum alríkisdómstólanna. Þá ber síðast að telja „The United States Sentencing Commission“, sem gefur út leiðbeiningarreglur um ákvörðun refsinga. III. DÓMSTÓLAR RÍKJANNA III. 1 Dóinsmálastjórn Eins og víðkunnugt er byggist stjómskipun Bandarrkjanna á þrígreiningu ríkis- valdsins og á það jafnt við sambandsríkið sem einstök ríki þess. Er þessi skipting afdráttarlausari heldur en í flestum ef ekki öllum ríkjum sem byggja stjórnskipun sína á þrígreiningunni. Þannig er dómsmálastjómin í ríkjunum ekki í höndum framkvæmdavaldsins heldur forseta hæstaréttar. Er það talinn þýðingarmikill þáttur í þrígreiningunni. Þó er það svo í nokkrum ríkjum að dómsmálastjómin er í höndum nefndar dómara og lögfræðinga. Forseti hæstaréttar hefur með höndum þau verkefni er lúta að dómsmálastjóm, sem dómsmálaráðherra hefur hérlendis og víðast hvar í Evrópu. Forsetinn hefur undir sinni stjóm „Office of 7

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.