Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Síða 15
Til þess að reyna að gefa einhverja hugmynd um dómstólaskipunina ætla
ég að fara nokkrum orðum um hvemig henni er í stórum dráttum háttað í
Oregonríki, en segja má að hún sé þar nálægt meðallagi, þ.e.a.s. hvorki mjög
einföld eða flókin á bandarískan mælikvarða.
A héraðsdómstiginu eru tvenns konar dómstólar „Circuit Court“ og „District
Court“. Þessir dómstólar eru yfirleitt undir sömu stjóm og sama þaki.
Munurinn á þeim er sá að „District Court“ fer með einkamál þegar kröfur
eru undir 10.000 dollurum, og sakamál vegna smærri afbrota (misdemeanors),
þ.e. þegar hámark refsingar er 3.000 dollarar eða árs fangelsi. Annars eru mál
höfðuð fyrir „Circuit Court“. Þó er ætíð hægt að höfða sakamál fyrir „Circuit
Court" hvert sem sakarefnið er. Til glöggvunar skal þess getið hér að það
mun almenn regla í Bandaríkjunum að skipta afbrotum í tvo flokka um
framangreind refsimörk, þ.e. „misdemeanors“ og „felony“. Til tals hefur
komið að sameina þessa tvo dómstóla í einn, enda sýnist aðgreiningin litlum
tilgangi þjóna. Virðulegra þykir þó að vera dómari í „Circuit Court“ og var
mér tjáð að sameining myndi þýða að erfiðara yrði fyrir yngri lögfræðinga
að fá dómarastöður, en þeir byrja yfirleitt dómaraferil sinn í „District Court“
og færast síðan í „Circuit Court“. Ef mál er höfðað í „District Court“ sem
höfða hefði átt í „Circuit Court“ er það einfaldlega fært þangað, án þess að
málið þurfi að fella niður og höfða það á nýjan leik. Fyrir báðum dómstólum
er hægt að krefjast þess að kviðdómur verði kallaður til. Til ársins 1977 var
ekki hægt að áfrýja dómum „District Court“ beint til áfrýjunardómstólsins,
eins og nú er, heldur þurfti málið fyrst að fara fyrir „Circuit Court“ og voru
þá dómstigin fjögur.
Einn sérdómstóll er á héraðsdómstigi, skattadómstóllinn, og hefur hann þá
sérstöðu að dómum hans verður áfrýjað beint til Hæstaréttar, en ekki fyrst til
millidómstólsins. Að vísu er honum skipt í tvær deildir og dómum þeirrar
deildar sem fæst við smærri skattamál verður aðeins skotið til hinnar
deildarinnar en ekki til Hæstaréttar.
I Oregon eru ekki sérstakir fjölskyldudómstólar (Family Courts), eins og
víða tíðkast. Þeir dómstólar eru fyrirferðarmiklir í bandaríska réttarkerfinu,
sem ekki er að undra, því að öðru hverju hjónabandi lýkur með skilnaði og
skilnaður fæst aðeins fyrir dómstólum.
I „District Court“ eru sérstakar smámáladeildir þar sem útkljáð eru mál þar
sem kröfur eru lægri en 2.500 dollarar.
Þá verður að telja til héraðsdómstigsins „Municipal Courts“ sem eru í
flestum borgum ríkisins. Þeim er komið á fót af borgarstjórnum, en starfa að
hluta til samkvæmt lögum ríkisins. Þessir dómstólar hafa takmarkaða lögsögu,
þ.e.a.s. í smærri einka- og sakamálum, einkum þeim er rísa vegna fyrirmæla
og reglna sveitarstjóma. Einnig má nefna ölvunarakstursbrot. Hægt er að
áfrýja ákvörðunum þeirra til „Circuit Court“.
Enn ber að nefna „Justice Courts“ í sýslum þar sem héraðsdómstólar hafa
ekki aðsetur og má ekki koma þeim annars staðar á fót. Dómarar í þessum
9