Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Side 16

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Side 16
dómstólum þurfa ekki að vera lögfræðingar, en eru það þó sumir hverjir. Þessir dómstólar hafa víðtækari lögsögu en „Municipal Courts“, en innan hennar eru ýmsar tegundir einkamála þegar kröfur ná ekki hærri fjárhæð en 2.500 dollurum. Þá hafa þessir dómstólar og dómsvald í minni háttar sakamálum. I sumum tegundum mála í þessum dómstólum báðum dæma kviðdómar. Þá skal að síðustu nefndur stjómsýsludómstóllinn, sem flokkaður er með „inferior courts“, en hann hefur þó þá sérstöðu að ákvörðunum hans verður áfrýjað beint til millidómstólsins. Millidómstóllinn (intermediate appellate court) er skipaður 10 dómurum sem sitja í þremur deildum, þrír í hverri. Sagt er að þessi dómstóll í Oregon sé afkastamestur allra dómstóla í Bandaríkjunum. Dómstóllinn verður að dæma í öllum málum, sem til hans verður skotið og þeirra á meðal eru kærumál. Þetta er kallað „mandatory jurisdiction“. Þetta fyrirkomulag tíðkast ekki í öllum millidómstólum í Bandaríkjunum, sums staðar geta þeir hafnað áfrýjun, enda þótt málið fullnægi skilyrðum um hana og er það fyrirkomulaga kallað „discretionary jurisdiction“, sem ef til vill mætti kalla valkvæða lögsögu. I hæstarétti eru 7 dómarar og sitja allir í hverju máli. Lögsagan er valkvæð í flestum tilvikum, en skyldug í nokkrum, s.s. þegar dauðarefsing liggur við broti sem ákært er fyrir. III. 3 Skipun dómara Dómarar í alríkisdómstólunum eru fyrst tilnefndir í dómarastöðu af forseta Bandaríkjanna og verður hann að bera tilnefninguna undir þjóðþingið, en áður hefur dómsmálanefnd þingsins rætt við umsækjendur eða yfirheyrt þá ef þörf krefur. Sé tilnefningin samþykkt skipar forsetinn í stöðuna. Þessi aðferð er stjómarskrárbundin einungis að því er dómara í Hæstarétti Bandaríkjanna varðar, en hefur ætíð verið notuð við skipun allra alríkisdómara. Kunnugt er að forsetinn tilnefnir nær alltaf flokksbræður sína í dómarastöður og virðist það ekki þykja gagnrýnivert og hefur tíðkast allt frá dögum George Washington. Hæfni þeirra sem til greina kemur að skipa í dómarastöður er þó metin af umsagnamefnd bandaríska lögfræðingafélagsins (American Bar Association), en dómarar hafa formlega ekkert um tilnefningu eða skipun að segja þótt stundum sé leitað ráða þeirra. Hins vegar munu öldungardeildar- þingmenn í þeim ríkjum sem alríkisdómstóllinn er í hafa umtalsverð áhrif á tilnefningar, þótt hvergi sé þeim ætlað það í lögunt. Flestir dómaranna koma úr röðum starfandi lögmanna. Nokkrir hafa verið dómarar í ríkjadómstólum eða saksóknarar. Fáeinir hafa verið lagaprófessorar. Alríkisdómarar geta látið af störfum á fullum launum þegar þeir hafa náð 65 ára aldri og samanlagður lífaldur og skipunaraldur þeitTa er 80 ár, en verða að láta af störfum sjötugir. Þeir verða þó að vera við því búnir að halda áfram störfum að hluta séu þeir til þess kallaðir og um það næst sérstakt samkomulag við starfandi dómara við þann dómstól þar sem þeir áður störfuðu. Þarf þá 10

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.