Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Side 20
á fjárhagsáætlun borgarinnar til þeirra þarfa. Hafði einn borgarfulltrúanna
komið auga á, að með því nróti mætti spara um eina milljón dollara. Varð nú
dómstjórinn að leita til vina sinna í borgarstjóminni og biðja þá fyrir alla
muni að koma í veg fyrir þessi ósköp. Hafði hann góðar vonir um að
spamaðartillagan yrði felld í borgarstjóminni. Tjáði hann mér að drjúgur hluti
starfstíma síns færi til þess að sinna hlutum ekki ósvipaðs eðlis.
IV. „NATIONAL CENTER OF STATE COURTS“
Eins og fyrr segir er engin heildarstjórn yfir dómstólum í ríkjum Banda-
ríkjanna. Hins vegar hefur verið komið á fót miðstöð þessara dómstóla
„National Center of State Courts“, sem kalla mætti Þjóðarmiðstöð ríkjadóm-
stólanna, og er aðsetur hennar í Williamsburg í Virginíu. Forgöngu um að
stofna þessa miðstöð árið 1971 hafði Warren Burger þáverandi forseti
Hæstaréttar Bandaríkjanna. Á þeim tíma var talið að hnignunar gætti hjá
bandarískum dómstólum, þeir væru tæknilega vanbúnir, réttarfarið úrelt og
þeim gengi illa að mæta auknu álagi. Ýmsir vilja reyndar telja að staða
bandarískra dómstóla sé síst betri nú og má þar sem dæmi nefna að í haust
sem leið var bandarískur lögfræðingur í heimsókn hér á landi og tók svo djúpt
í árinni að segja að bandaríska dómstólakerfið væri hrunið.
Þessi dómstólamiðstöð á að gegna því hlutverki að ráða bót á þessu ástandi
með því að veita dómstólunum þjónustu af ýmsu tagi, s.s. fræðilegar og
tæknilegar upplýsingar, rannsóknir, þjálfun starfsfólks, útgáfustarfsemi og
aðstoð við stjómun, skipulagningu og endurskipulagningu dómstóla, en
sérstök stofnun starfar á vegum miðstöðvarinnar að ráðgjöf við stjórnun
dómstóla. Má hér sem dæmi nefna að á árinu 1992 gaf miðstöðin út 10 bækur
af ýmsu tagi þar á meðal handbók um rekstur dómsmála sem vekja mikla og
almenna athygli og bók um skipulagningu og hönnun dómhúsa. Starfsemi
miðstöðvarinnar er fjármögnuð að jöfnu af alríkisstjórninni og ríkjunum, en
einnig leggja einstaklingar henni til nokkurt fé. Miðstöðin er eins konar
sjálfseignarstofnun og er stjómað af 20 dómurum og skrifstofustjórum frá nær
jafnmörgum ríkjum Bandaríkjanna. Dómarar sem spurðir voru sögðu þessa
miðstöð mjög til bóta og virtist ríkja ánægja með starfsemi hennar meðal
þeirra. Hér er rétt að geta þess að í háskólanum í Reno í Nevada er sérstök
deild sem annast þjálfun ungra dómara og endurmenntun hinna eldri. Um þær
mundir sem ég var í þessari heimsókn héldur bandarískir dómarar þar
dómaraþing sitt. Þá er einnig rétt að geta þess að í tveimur háskólum í
Bandaríkjunum er hægt að læra dómstólastjómun sem aðalfag til háskólaprófs,
en því miður kann ég ekki að nafngreina þá háskóla.
14