Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Page 49

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1994, Page 49
sem ekkert eftir atviki því sem hann var dæmdur fyrir, svo langt var um liðið og margt gerst í millitíðinni. Hann hafði meira og minna verið undir áhrifum vímuefna á tímabilinu. Til þess að skilvirkni geti orðið sem mest í þeim málum síbrotamanna þar sem játningar eða sannanir liggja fyrir um sök, þarf rannsókn í málum þeirra að geta gengið vel og vandlega fyrir sig, það á að vera hægt að gefa út ákæru svo til í beinu framhaldi af rannsókn, þau mál segja dómarar að eigi að vera hægt að dómtaka með stuttum fyrirvara og ekki síst; úrræði þurfa að vera fyrir hendi varðandi möguleika á „refsingu“. Dómarar eiga í þeim málum sem og í málum ungra afbrotamanna að hafa miklu rýmri úrræðamöguleika en þeir hafa í dag, með hæfilegri samhæfingu þó. „Refsingin“ á m.a. að taka mið af því ástandi sem afbrotamaðurinn er í, hvemig hún megi verða til þess að auka líkur á að hann komist inn á rétt spor aftur, hvernig draga megi úr líkum á að hann haldi afbrotum áfram að lokinni „refsingu", hve verðskulduð refsingin á að vera miðað við framið afbrot og hvernig er hægt að halda honum frá þátttöku í þjóðfélaginu á meðan ekki er sýnt að hann láti af afbrota- ferli og aðstoðar er þöif honum til handa. Allt of algengt er að þeir sem einu sinni hafa þurft að afplána fangelsisvist fremji hliðstæð eða alvarlegri afbrot eftir að henni er lokið. í dag líta margir svo á, að dómar yfir afbrotamönnum komi seint og þegar þeir koma séu þeir úr takt við raunveruleikaskyn fólks. Kannski að vægir dómar endurspegli þá skoðun dómara að fangelsi miðað við núverandi aðstæð- ur sé ekki sú refsing, sem telja má farsæla afbrotamanninum til handa. Önnur úrræði þurfi að koma til. Ekki virðist þó hægt að kenna lengur dómskerfinu að jafnaði um nefndan seinagang mála ef marka má nýjustu fréttir. Flýta þarf rannsókn, útgáfu ákæru og dómsmeðferð í málum síbrotamanna. í dag er það þó almennt viðhorf meðal rannsóknarlögreglumanna að ekkert þýði að senda mál áfram til útgáfu ákæru eða til ríkissaksóknara nema hlé verði á brotaferli viðkomandi. Hér er annað hvort um að ræða rangt mat, rangt viðhorf eða röng vinnubrögð lögreglumannanna er mótast hafa af hefðum, eða um er að ræða fyrirmæli frá einhverjum í kerfinu. Þessu þarf að breyta í málum þeirra einstaklinga, sem sýnt er að hafi ekki látið eða vilji ekki láta af afbrotaferli sínum. Um er að ræða tiltölulega fáa einstaklinga er valda heiðarlegu fólki miklum skaða. Oft eru afbrotin vímuefnatengd. Til þess að auka megi skilvirknina og til að mál geti gengið eðlilega fyrir sig, þarf að vera mögulegt að taka þegar í stað fyrir einstök mál afbrotamanna, s.s. þegar þeir eru staðnir að verki, gefa út ákæru og dómtaka málin á mjög skömmum tíma, helst á meðan viðkomandi er enn í höndum lögreglu. Þannig væri fyrst hægt að tengja ferlið afbrot - viðurlög með áhrifaríkum hætti. Ríkissaksóknari virðist ekki, þrátt fyrir mikla nauðsyn, hafa reynt að bregðast við þeirri þörf að sinna þessum tilteknu málum, þ.e. málum síbrotamanna, betur en raun ber vitni. Því það er ekki síst hans að reyna að skilvirkja það kerfi sem hann stendur fyrir og það er ekki síst hans að beina athygli ráðuneytis 43

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.