Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Blaðsíða 10
Gunnar M. Guðmundsson
fv. hœstaréttardómari
MINNING
Gunnar M. Guðmundsson
fv. hæstaréttardómari
Gunnar M. Guðmundsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, lést 23. apríl 1997
á heimili sínu í Reykjavík eftir nokkurra mánaða veikindi. Hann var fæddur 12.
febrúar 1928, sonur Magdalenu Helgu Runólfsdóttur og Guðmundar H. Guð-
mundssonar, húsgagnasmíðameistara og borgarfulltrúa. Gunnar varð stúdent
1948 og lauk lagaprófi 1954. Hann kvæntist Guðbjörgu Pálmadóttur frá Akur-
eyri 1956 og eru böm þeirra þrjú, Hörður trésmiður, Bragi lögfræðingur, sem
kvæntur er Herdísi Þorgeirsdóttur og Anna Guðrún hjúkrunarfræðingur. Maður
hennar er Ragnar Danielsen. Bamabömin em fimm.
Haustið 1954 hóf Gunnar störf sem fulltrúi borgardómarans í Reykjavík,
Einars Amalds. Skipan dómstólanna í Reykjavík var þá önnur en nú er og
fékkst borgardómaraembættið nær eingöngu við einkamál. Þar var þá aðeins
einn borgardómari, en hjá honum störfuðu margir fulltrúar. Gunnar fékk vanda-
söm mál til meðferðar. Hann vann að því að semja dóma í skaðabótamálum,
aðallega málum um líkamstjón. Reglumar um bætur í þessum málum byggðust
þá á fordæmum í eldri dómsmálum. Örorka var metin af lækni og tjónið reiknað
af tryggingarstærðfræðingi á grundvelli tekna tjónþola fyrir slysið svo og aldurs
hans og annars, sem talið var að þýðingu hefði og um höfðu skapast nokkum
veginn ljósar reglur. Það kom í hlut dómarans að meta fram komin gögn,
ákveða hvort annar aðili ætti að bera tjón hins slasaða vegna sakar eða reglna
um bætur án sakar og loks að tilgreina bótafjárhæðina endanlega. Meðferð
dómsmála á þessu sviði var þá og er enn ábyrgðarstarf, þar sem mikilvægir fjár-
hagslegir hagsmunir geta verið í húfi og þar sem réttlætiskennd manna kemur
4