Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Blaðsíða 8

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Blaðsíða 8
að mati lögmanna þá skipar hann meirihluta svonefnds Lögmannaráðs sem tek- ur við eftirlits- og agavaldi yfir öllum lögmönnum. Valdið er nú hjá Lögmanna- félaginu sjálfu og í könnun meðal lögmanna voru nánast allir sem svöruðu á móti því að eftirlits- og agavaldið færi til ráðuneytisins. Það er staðreynd að allt frumkvæði að reglurn um eftirlits- og agavald hefur komið frá lögmönnum sjálfum. I dæmaskyni má nefna að árið 1976 samþykkti Lögmannafélag Islands að koma á fót ábyrgðarsjóði til að bæta tjón sem skjól- stæðingar lögmanns verða fyrir vegna fjárþrots og hafa skattlagt sjálfa sig í þessum tilgangi. Árið 1995 voru að frumkvæði Lögmannafélags íslands samdar og samþykktar reglur um ábyrgðartryggingar og fjárvörslureikninga. Lög- mannafélag íslands átti einnig frumkvæði að því að fram fór heildarendur- skoðun á lögum um lögmenn frá 1942. Ríkisvaldið hefur aldrei átt frumkvæði eða talið þörf afskipta í þessum málefnum og því skýtur það skökku við að nú skuli allt vald flutt til ríkisins. Á því er engin þörf og um það hefur enginn beðið. Þvert á móti er það skoðun flestra að með fyrirkomulagi því sem boðað er í frumvarpi til laga um lögmenn, sé verið að ganga gegn viðurkenndum grundvallarsjónarmiðum. I þessu tímariti þarf ekki að skýra reglumar um skipt- ingu valdsins. Þær eru ljósar og á þeim er stjómskipunin byggð. Dómstólamir eru sjálfstæðir og reglur um sjálfstæði þeirra em auðvitað settar af nauðsyn en ekki í einhverjum fínheitatilgangi. Lögmenn eru starfsmenn dómstólanna og eiga skilyrðislaust að njóta sama sjálfstæðis. Það sjálfstæði er sömuleiðis nauð- syn enda er sjálfstæði lögmanna ekki þeirra sjálfra vegna, heldur vegna hlut- verks þeirra í réttarkerfinu og sem eðlilegur liður í sjálfstæði dómstólanna. Sjálfstæði lögmanna er einnig nauðsynlegt fyrir það traust sem allir þurfa að bera til lögmanna sinna vegna réttaröryggisins. Eðlilegt er að spurt sé til hvers og af hverju þurfi sérstakt aga- og eftirlitsvald með lögmönnum. Af hverju geta þeir sem lenda í útistöðum við lögmenn ekki farið að eins og allir hinir og klagað fyrir dómstólunum rétt eins og t.d. vegna iðnaðarmannsins sem sendir of háan reikning eða klúðrar verki sínu svo að tjón hlýst af? Róttækustu sjónarmiðin sem heyrst hafa eru urn að leggja þetta allt af, -lögmannafélagið, ábyrgðarsjóðinn, siðareglumar, eftirlitskerfið og agavaldið svo og einkaréttinn til málflutnings. Á móti er því svarað til að lögmenn gegni ákveðnu opinberu hlutverki og til þeirra þurfi að gera ríkar kröfur. Lögmönnum sé veittur einkaréttur til ákveðinna starfa og því eðlilegt að til sé fljótvirk og ódýr leið til að ná fram niðurstöðum í kvörtunarmálum skjólstæðinga lög- manna. Loks eru það hagsmunir lögmannastéttarinnar sjálfrar sem ráða því að settar hafa verið strangar siðareglur, raunhæft eftirlitskerfi og fljótvirkt og sann- gjamt agavald. Þessar reglur hefur lögmannastéttin sett sér sjálf og af eigin fmmkvæði. Það er engin tilviljun að alls staðar í veröldinni og í öllum skipulögðum þjóð- ríkjum þar sem sæmilegur menningarbragur er, hafa lögmannafélög sett sér siðareglur og komið sér upp kerfi eftirlits- og agavalds. I öllum löndum Evrópu, sem Island tekur oftast mið af, er skylduaðild að lögmannafélögum og eftirlits- 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.