Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Page 17

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Page 17
tryggja framgang sérhvers ákvæðis samningsins, sbr. 2. gr. hans, og að þeim réttindum sem samningurinn kveður á um skuli aðildarríkin framfylgja gagn- vart öllum óháð kynþætti, litarhætti, kynferði eða öðru. Aðildarríkin taka á sig þá skyldu að virða ákvæði samningsins og beita öllum tiltækum ráðum, þ.m.t. lagasetningu, til að tryggja að þau réttindi sem samningurinn kveður á um kom- ist til framkvæmda. 13. gr. samningsins er jafnframt ákvæði um að aðildarríkin ábyrgist jöfn rétt- indi til handa körlum og konum til þess að njóta þeirra efnahagslegu, félagslegu og menningarlegu réttinda sem sett eru fram í samningnum. í 7. gr. er ákvæði um jafnan rétt kvenna og karla til starfsskilyrða og til jafns kaups fyrir jafna vinnu. Um hjúskap og sérstaka vemd mæðra er fjallað í 10. gr. Samkvæmt samningnum um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi taka að- ildarríkin á sig þá skyldu að virða og ábyrgjast öllum einstaklingum innan land- svæðis síns þau réttindi sem viðurkennd em í samningnum án nokkurrar mis- mununar svo sem vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis eða annarra aðstæðna. Jafn réttur kvenna og karla er ítrekaður í 3. gr. samningsins en samkvæmt henni takast aðildarríkin á hendur að ábyrgjast jöfn réttindi kvenna og karla til að njóta þeirra borgaralegu og stjómmálalegu réttinda sem samningurinn kveður á um og í 23. gr. samningsins er ákvæði um jafnan rétt kynjanna til stofnunar hjú- skapar, á meðan hjúskapur varir og við slit á hjúskap. En mannréttindi kvenna em ekki aðeins staðfest í stofnyfirlýsingu Samein- uðu þjóðanna, alþjóðasamningum og samþykktum á vegum samtakanna. Mál- efni kvenna hafa alla tíð skipað sess í starfi samtakanna, þó ef til vill aldrei eins stóran og á síðustu 25 til 30 árum. A árinu 1967 samþykkti allsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna yfirlýsingu um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Yfirlýsingin er mjög ítarleg og hefur væntanlega lagt gmnninn að þeim sérstaka samningi Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um mannréttindi kvenna, CEDAW samningnum eða kvennasamningnum eins og hann hefur verið nefndur. Með fullgildingu mannréttindasáttmála taka aðildarríkin á sig þá skyldu að virða þau réttindi sem í samningnum felast og tryggja að þeir einstaklingar sem eru innan lögsögu ríkisins fái notið þeirra réttinda sem í samningnum greinir. Mannréttindayfirlýsing S.þ. og ákvæði í alþjóðasamningnum um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og um borgaraleg og stjómmálaleg réttindi þess efnis að réttindin skuli tryggð öllum óháð kynferði byggir á því sjónarmiði að konur og karlar skuli njóta jafnréttis í hvívetna, að konur skuli vera eins sett- ar og karlar. Bæði kynin skulu því bera sömu ábyrgð og skyldur og njóta þar með sömu réttinda. Ákvæði þessara mannréttindsamninga byggja á hinu form- lega jafnrétti kynja. Fræðimenn hafa gagnrýnt að samningamir gefi enga mögu- leika á að skoða sérstöðu kvenna en staðreyndir sýna að aðstæður þeirra eru aðrar en karla. Sérstök ákvæði er taka mið af raunverulegri stöðu þeirra séu því nauðsynleg til að tryggja þeim sömu mannréttindi og körlum. Aðrir fræðimenn benda á nauðsyn þess að túlka hina hefðbundnu mannréttindasamninga þannig að mið sé tekið af þeirri staðreynd að hefðir, venjur og viðhorf samfélags vinni 11

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.