Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Síða 53

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1998, Síða 53
og hver önnur fjárverðmæti eða fjármunaréttindi eftir almennum reglum, sem um erfðir slíkra réttinda gilda. 6. Rétthafar geta leitað til yfirvalda, ef þeir eru hindraðir í því að neyta réttar síns, hvort heldur sem er vegna ráðstafana rfkisvaldsins sjálfs eða ofríkis annarra aðila. Þessi upptalning sýnir, að eftir gildistöku fiskveiðistjómunarlaganna og þar með upptöku veiðiheimilda, er komin upp allt önnur lögfræðileg staða en áður var í hinu eldra kerfi varðandi meðferð og nýtingu þeirrar auðlindar, sem fiski- stofnamir á Islandsmiðum em. 6.6 Stenst fiskveiðistjórnunarkerfíð? Þegar svo er komið málum, sem hér hefur verið rakið, er eðlilegt að menn spyrji sig þeirrar spumingar, hvort það fái staðist að afhenda tiltölulega fáum einstaklingum jafnverðmæt réttindi yfir sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Því er til að svara, að í lagalegum skilningi stenst þetta kerfi í aðalatriðum. Hvort það hins vegar stenst siðferðilega og er að öllu leyti réttlátt, er fyrst og fremst háð siðferðilegu og pólitísku mati, ekki lögfræðilegu. í þessu sambandi er rétt að hafa í huga, að við setningu fiskveiðistjómunar- laganna árið 1990 var það pólitískt mat löggjafans, að því aðeins væri hægt að ná fram aukinni hagkvæmni í fiskiskipaflotanum, að hægt væri að færa afla- heimildir varanlega milli fiskiskipa. Með því móti einu gætu menn hagrætt og dregið úr sóknarkostnaði við veiðar. í þessu sambandi skal vitnað til orða þá- verandi sjávarútvegsráðherra, er hann mælti fyrir fmmvarpi til fiskveiðistjóm- unarlaganna. Hann sagði m.a. svo: Á þann eina hátt gefst aflamönnum kostur á að njóta sín, því að sjálfsögðu munu aflaheimildir leita til þeirra í framtíðinni, sem aflanum ná með minnstum tilkostnaði. Það er jafnframt eina leiðin til að sameina aflaheimildir skipa, að fækka fiskiskipum og minnka þar með afkastagetu flotans. Framseljanlegar veiðiheimildir eru því grundvallaratriði í þessum tillögum um fiskveiðistjóm. Þær em sá aflvaki, sem stuðl- ar að aðlögum fiskiskipastólsins að afrakstursgetu fiskistofnanna. Þannig eru lögmál markaðskerfisins nýtt til að auka hagkvæmni veiðanna. Nauðsynlegt er þó að menn geri sér ljóst frá upphafi, að í fyrstu munu þessum framsalsheimildum fylgja vanda- mál.21 Segja má, að í þessum ummælum sjávarútvegsráðherra hafi að hluta til kom- ið fram hin pólitíska réttlæting eða forsenda kerfisins, sem síðan endurspeglast í ákvörðun Alþingis eins og hún birtist í lögunum sjálfum. Með því fyrirkomu- lagi um stjóm fiskveiða, sem lög nr. 38/1980 bjóða, hefur Alþingi væntanlega talið sig vera að vemda almannahagsmuni eða almannaheill, og samkvæmt 21 Alþt. 1989-1990, Umræður, d. 3815-3816. 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.