Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 138
ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
G
Magnús Þór Magnússon framkvæmdastjórí.
Fjölskyltíufyrir-
tœki í hnotskurn
Volti var stofnaður árið 1945 af Magnúsi Hannessyni rafvirkja-
meistara og hefur verið rekið sem fjölskyldufyrirtæki síðan. Son-
ur Magnúsar, Magnús Þór Magnússon verkfræðingur er fram-
kvæmdastjóri. Sölu- og markaðsstjóri er Áslaug María Magnús-
dóttir og er hún því þriðji ættliðurinn sem starfar við rekstur fyr-
irtækisins.
í meira en fimmtíu ár hefur Volti
verið leiðandi fyrirtæki á íslandi í
þjónustu og viðgerðum á flóknum
rafbúnaði. Fyrstu árin var þjón-
ustan nær einvörðungu bundin
við skip og útgerðir. Með vaxandi
iðnvæðingu jókst þjónustan við
verksmiðjur og framleiðslufyrir-
tæki. Á seinni árum hafa svo
ýmis þjónustufyrirtæki og stofn-
anir bæst í hóp viðskiptavina.
Rafvélaverkstæði Volta er eitt
hið fullkomnasta á landinu. Boð-
ið er upp á viðgerðir á öllum
stærðum og gerðum rafvéla og
er verkstæðið leiðandi í viðgerð-
um á jafnstraumsvélum. Starfs-
fólkið beitir vönduðum vinnu-
brögðum og hagstæðum úr-
Ifolti ehf.
lausnum enda með sérþekkingu
og reynslu á þessu sviði.
Skipaþjónusta Volta er löngu
orðin landsþekkt fyrir vandaða
Volti ehf.
Vatnagörðum 10
104 Reykjavík
Pósthólf 4050
124 Reykjavík
Sími: 570 0000
Fax: 570 0017
og góða fagvinnu enda fumlaus-
ir fagmenn þar á ferð. Það er
mikill styrkur í þjónustu Volta við
viðskiptavini sína að geta beint
verkefnum til viðgerðar á verk-
stæðinu, sem ekki er hægt að
ráða við á staðnum.
Volti hefur lagt vaxandi
áherslu á beinan innflutning og
verslun með rafbúnað. Þessi
þáttur starfseminnar er ört vax-
andi. Um er að ræða allar raf-
magnsvörur til raflagna, ræsi- og
stjórnbúnað fyrir rafvélar, svo og
mælitæki. Framleiðendurnir eru
þekkt fyrirtæki hvert á sínu sviði,
svo sem ABB (töfluefni),
BERKER (innlagnaefni) og HIOKj
(mælitæki). Auk þess tekur Volti
reglulega þátt í útboðum á raf-
búnaði fyrir rafveitur, sérstaklega
háspennurofabúnaði. Framleið-
endurnir tilheyra stærstu fyrir-
tækjasamsteypum í heimi á sviði
rafbúnaðar, eins og ABB og
Schneider Electric.
Ýmsar nýjar vörulínur bættust
við lager Volta á þessu ári. Má
þar helst nefna WEG rafmótora
ásamt öllum varahlutum (legur,
þéttar, tengibretti, flangsar),
hreinsiefni fyrir rafmótora og raf-
lökk.
Markmið Volta eru einföld og
hafa verið þau sömu frá upphafi:
• Fagþekking
• Áreiðanleiki
• Viðbragðsflýtir
Þegar bætist við hálfrar aldaf
reynsla, þjónusta og vörur á
verði eins og best gerist er fátt
um jafningja: Volti og valið er ein-
falt.
136 ÆGIR