Ægir - 01.08.1999, Síða 112
ISLENSKA SJÁ VARÚTVEG S S Ý NIN GIN - AUKABLAÐ ÆGIS
Örn Þorláksson markaðs- og sölufulltrúi.
Þegar hnútstyrkurinn
skiptir máii
Á sjávarútvegssýningunni leggur Hampiðjan mesta áherslu á
tvær útfærslur af Gloria flottrollum, nýja gerð af PE-neti sem heit-
ir Magnet, og Dynex afurðir.
Gloria trollin hafa verið notuð í 10
ár og skilað afar góðum árangri.
Hampiðjan nýtur þess að flestir
hlutir í framleiðsluna eru fram-
leiddir í verksmiðju Hampiðjunn-
ar og gerir það fyrirtækinu kleift
að bregðast skjótt við ef að-
stæður kalla á breytingar. Flot-
vörpuþjónusta Hampiðjunnar á
Grandagarði hnýtir síðan saman
trollin. „Markaðssetningin á
Gloriunni hefur gengið mjög vel,
enda vitum við að hún reynist
mönnum vel hér á landi og er nú
notuð í öllum heimsálfum," segir
Örn Þorláksson hjá Hampiðj-
unni.
Magnet er ný gerð PE-troll-
nets sem kom á markað í vetur
og hefur hlotið mjög jákvæð við-
brögð. Helstu kostir þess eru
þétt flétta og mikill mergur í garni
og netið er hannað til að fá sem
mestan styrk í hnútinn, sem er
veikasti hluti netsins.
Dynex-tóg er er unnið út Dy-
neema þráðum sem Hampiðjan
hefur unnið með í tæplega tíu ár
og er talin byltingarkennd afurð.
Þræðirnir eru unnir hjá DSM í
Hollandi. Hampiðjan framleiðir
Hampiðjan
síðan tóg og net úr þeim. Helstu
eiginleikar efnisins eru mikill
styrkur, það er um 15% sterkara
en stálvír af sama sverleika, það
er mjög meðfærilegt og svo létt
að það flýtur á vatni. Dynex er
einnig notað í dráttartóg, í olíu-
iðnaði og öðrum þungaiðnaði.
„Markaðsstarf Hampiðjunnar
er mjög öflugt. Fyrirtækið tekur
þátt í mörgum vörusýningum,
bæði fyrir sjávarútveg og olíuiðn-
að, um allan heim. í tengslum við
það ferðast markaðsmenn fyrir-
tækisins víða. Fyrirtækið er með
útibú erlendis, m.a. er garnverk-
Hampiðjan
Bíldshöfði 9
112 Reykjavík
Sími: 530 3300
Fax: 530 3309
Netfang:
hampidjan@hampidjan. is
smiðja í Portúgal en allt garn
þaðan er flutt heim og hnýtt úr
því hér. Við erum með netaverk-
stæði á Nýja-Sjálandi, í Namibíu
og í Seattle. Þar að auki erum við
með umboösmenn um víðan
völl,“ segir Örn.
Hjá Hampiðjunni starfa 240
manns, þar af eru um 100
starfsmenn erlendis. Helsta
verkefni Hampiðjunnar á næst-
unni er hönnun trolla fyrir upp-
sjávarfisk: kolmunna, makríl o.fl-
Þar miðar vel og má nefna góð-
an árangur Þorsteins EA með
nýtt kolmunnatroll frá Hampiðj-
unni. Einnig má nefna yfirfléttun
á ofurtógi. Vöruþróun er alltaf á
dagskrá og er undirstaða fram-
fara. Örn segir að um það bij
helmingur framleiðslunnar sé
fluttur út og stendur til að auka
útflutninginn enn frekar. Hann
segir sölu á heildarlausnum hafa
aukist og þá er algengt að menn
séu sendir með veiðarfærunum
til að kenna á þau og skilja ekki
við notendur fyrr en allir eru
ánægðir og veiðarfærin virka
fullkomlega. „Draumur okkar &
að efla samstarf við Hafrann-
sóknarstofnun og þjónustuaðila i
sjávarútvegi á íslandi og gera ls-
land að Mekka veiðarfæraiðnað-
ar. Við leggjum mikla áherslu á
vöruþróun og gott samstarf við
viðskiptavininn í því sambandi er
okkur mjög mikilvægt. Einnið
viljum við stuðla að eflingu um-
ræðu um nýjungar í veiðarfæra-
gerð.“
110 ÆGIR