Ægir - 01.08.1999, Blaðsíða 132
ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
Sigurður Stefánsson framkvæmdastjóri og Pétur Þorkeisson verkstjóri.
40 ái'cr reynsla
Vélaverkstæði Sigurðar ehf. var stofnað 30. desember 1994 en
byggir á meira en 40 ára grunni Vélaverkstæðis Sigurðar Svein-
björnssonar hf. þar sem flestir starfsmenn síðarnefnda fyrirtæk-
isins starfa hjá því fyrrnefnda.
„Við sérhæfum okkur í hönnun,
þróun og framleiðslu á vindum
og vökvakerfum fyrir fiskiskip.
Fyrirtækið byggir á yfir 40 ára
reynslu við framleiðslu á vindum
sem þróaðar hafa verið í sam-
vinnu við íslenska skipsstjórnar-
menn og sjómenn til að standast
kröfur þeirra og starfsmenn okk-
ar hafa alltaf hagsmuni við-
skiptavinarins að leiðarljósi í
þeim efnum,“ segir Sigurður
Stefánsson framkvæmdastjóri
Vélaverkstæðis Sigurðar.
„Kapalvindur frá okkur hafa
verið sérlega eftirsóttar. Þær eru
með fullkomnu stýrikerfi frá INS
og tryggir það örugga og lipra
stjórn vindunnar. Þetta autokerfi
hefur reynst mjög vel og hefur
hlotið mikla útbreiðslu i flotan-
um. Við bjóðum einnig sem hluta
af heildarlausnum dælustöðvar,
stjórnloka og stýrikerfi fyrir tog-
vindur og kapalvindur sem og
aðrar vindur. Þá hefur aukist
mikið eftirspurn eftir dragnótar-
vindum og höfum við t.d. nýlokið
að semja um smíði á slíkum
vindum sem og hönnun vökva-
kerfis í níu ný skip sem smíðuð
VélaverkstaeBi
Sigurðar hf.
verða í Kína á næstu mánuðum.
Við hönnun og smíði á vindunum
er áhersla lögð á kröfur um gæði
og litla fyrirferð. Rekstraröryggi
er einnig mikið eins og reynsla
fjölmargra viðskiptavina hefur
leitt í ljós,“ segir Sigurður.
Um borð í einum togara er
ekki bara togspilið sjálft, heldur
nokkrar gerðir spila og spilkerfa.
Verkstæðið smíðar og setur upp
togspil, grandaraspil, kapalvind-
ur, flotvörpuvindur, akkerisvindur
og hjálparvindur eftir þörfum. Nú
Vélaverkstæði
Sigurðar hf.
Skeiðarás 14
210 Garðabæ
Sími: 565 8850
Fax: 565 2860
Netfang: velasig@tv.is
er t.d. verið að breyta Hafnareý
frá Hornafirði á Spáni og mun
hún verða búin vindum frá okkur
þegar því er lokið. Mörg skip í ís-
lenska fiskiskipaflotanum eru
búin kapalvindum frá Vélaverk-
stæði Sigurðar. Þar mát.d. nefna
Svalbak EA, Sigurbjörgu ÓF,
Vestmannaey VE, Ms Anijksciai,
Kiel, Arnar HU, Wiesbaden og
svo mætti lengi telja. Sigurður
segir að hönnun spilanna þeirra
geti verið stöðluð og löguð að
hverju skipi fyrir sig en að jafn-
framt sérhanni fyrirtækið lausnir
sem henti nákvæmlega hverju
skipi.
Þó svo að aðalverkefni fyrir-
tækisins séu fólgin í smíði og
uppsetningu spila og spilkerfa
þá sinnir það einnig alhliða við-
haldi. Sigurður segir að yfirleitt
sé viðhald á fiskiskipum tekið
fyrir eftir þörfum og farið í hvert
verk þegar röðin komi að því-
Honum finnst samt ástæða til að
íslenskir útgerðarmenn kanni
möguleika á að taka upp fyrir-
byggjandi viðhald og geri þjón-
ustusamning við verkstæði um
endurnýjun á slithlutum áður en
þeir gefa sig eða skemma hugs-
anlega út frá sér.
Á sjávarútvegssýningunni set-
ur Vélaverkstæði Sigurðar upp
sýnishorn af framleiðslu fyrirtæk-
isins og geta gestir virt hana fyr*
ir sér. Sigurður vonast til að sem
flestir komi við hjá þeim og leit'
eftir upplýsingum um þá þjón-
ustu sem fyrirtækið býður ís*
lenskum sjávarútvegi.
130 ÆGffi ----------------------------------------------------------------"
L