Ægir - 01.08.1999, Page 198
ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN - AUKABLAÐ ÆGIS
I Daníelsslipp.
Daníel Þorsteinsson
& Co.
Bakkastígur 9
101 Reykjavík
Sími: 561 2879
Fax: 552 5983
MikiB um crð vera
Daníel Þorsteinsson & Co. eða Daníelsslippur, eins og fyrirtækið
er yfirleitt kallað, var stofnað 1934 af Daníel Þorsteinssyni og
fleirum. Fjölskylda hans hefur ætíð síðan þá rekið fyrirtækið og í
dag er Gunnar Richter, dóttursonur Daníels, framkvæmdastjóri
þess.
Gunnar er lærður trébáta-
smiður og hefur starfað hjá fyrir-
tækinu um árabil. Meðal 18
starfsmanna í fyrirtækinu eru
þrjú börn hans, þannig að Daní-
elsslippurinn ber nafnið fjöl-
skyldufyrirtæki með rentu. Daní-
elsslippur er ein fárra skipa-
smíðastöðva sem tekur trébáta
til viðgerðar. Gunnar segir það
meira hafa verið tilviljun að hlut-
irnir þróuðust þannig.
„Fyrir utan trébátaviðgerðir
eru aðalverkefni okkar hreinsun,
málun og önnur viðhaldsverkefni
en kröfur manna um að bátar
séu gerðir úr ryðfríum, illbrjótan-
legum efnum verða til þess að
trébátarnir hverfa úr flotanum
innan tíðar. Við höfum lagt
Daníel nor-
steinsson & Co.
áherslu á að vera fljótir, vandaðir
og samningsliprir," segir Gunnar.
Daníelsslippur hefur helgað
sig þjónustu við bátaflotann og
er fyrirtækið útbúið dráttarbraut
með hliðarfærslum, þannig að
átta bátar geta verið uppi í einu.
Þau verkefni sem eru of stór til
að Daníelsslippur geti tekið þau
að sér, sendir fyrirtækið til ann-
arra stöðva. Þess má t.d. geta
að Daníelsslippur keypti fyrir
skömmu bát sem hafði skemmst
mikið í bruna. Fyrirtækið gat ekki
séð sjálft um endurbyggja bátinn
og sendu hann þá til nágranna
sinna í Stálsmiðjunni við Mýrar-
götuna þar sem unnið er að
verkinu.
Gunnar segir að það sé greini-
legt að hagur útgerða sé betri nú
en var fyrir nokkrum árum. Menn
borgi sína reikninga og sjaldan
gerist nú orðið að útistandandi
kröfur tapist. Á síðasta ári voru
verkefnin miklu fleiri en árið þar á
undan. Gunnar hefur því engar
áhyggjur af verkefnaskorti j
framtíðinni. Ekkert bendir því til
annars en Daníelsslippur lifi
góðu lífi líka næstu sex áratugina
og gott betur en það.
196 ÆGIR