Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 16
14
hamingju með þessa mikilvægu viðbót við kennslusvið deild-
arinnar.
1 tengslum við þetta mál er rétt að geta þess, að rannsóknar-
stofu i jarðeðlisfræði í Raunvísindastofnun Háskólans hefir nú
verið breytt í rannsóknarstofu í jarðvísindum. Er það von Há-
skólans, að sem mestur hluti af undirstöðurannsóknum í jarð-
vísindum i heild sinni flytjist til þessarar rannsóknarstofu og
skapist með þeim hætti samfellt rannsóknarumhverfi.
VI.
Eins og kunnugt er, var Norræna húsið vígt í ágúst í sumar.
Háskólinn átti á sínum tíma hlut að þeirri hugmynd, að norrænu
sendikennararnir hér við Háskólann fengju starfsaðstöðu í þess-
ari byggingu. Sú aðstaða, sem þeir hafa nú fengið þar, er mikil-
væg og treystir mjög kennslu og rannsóknir í norrænum tungu-
málum hér við Háskólann. Háskólinn fagnar af heilum hug til-
komu Norræna hússins og metur mikils þann vinarhug, er Norð-
urlandaþjóðirnar hafa sýnt íslendingum með því að reisa þessa
fögru og ágætu byggingu hér í grennd við Háskólann. Megi þessi
bygging tengja okkur Islendinga enn nánari menningartengslum
við Norðurlandaþjóðirnar, megi þær miklu vonir, sem við stofn-
unina eru tengdar, rætast. Ég flyt forstjóra Norræna hússins,
ívari Eskeland, hamingjuóskir og þakka honum jafnframt
ánægjulegt samstarf og ýmiskonar fyrirgreiðslu hans við skól-
ann nú í haust.
vn.
Hinn 1. október s.l. voru liðin 60 ár síðan lagakennsla hófst
hér á landi, en þann dag hóf Lagaskóli Islands starfsemi sína.
Lagaskólanum var fárra ára auðið, eins og kunnugt er, hann
sameinaðist Háskólanum 1911, og lagadeild tók við starfi hans.
Fyrstu kandídatarnir í lögfræði tóku próf hér vorið 1912, fjórir
talsins, og eru allir látnir. 1 hópi þeirra var prófessor Ólafur
Lárusson, sá maður, sem lengst allra hefir kennt við lagadeild og
hefir mótað stétt lögfræðinga manna mest og isienzka lögfræði.