Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 181
179
próf í stað innan skóla prófdómanda, og við próf í forspjallsvísind-
um skal vera einn prófdómandi utan Háskólans.
21. gr.
30. gr. orðist svo:
Forseti háskóladeildar metur, að höfðu samráði við greinarkenn-
ara, hvort viðurkenna skuli háskólapróf, sem stúdent hefur tekið
erlendis, og að hverju leyti. Setja má almenn ákvæði í reglugerð um
viðurkenningu erlendra prófa.
22. gr.
Við 31.gr. i. f. bætist svo hljóðandi málsliður:
Fulltrúar stúdenta á deildarfundum eiga ekki atkvæðisrétt um
veitingu doktorsnafnbóta.
23. gr.
37. gr. 1. málsgr. orðist svo:
Við Háskóla íslands eru þessi prófessorsembætti:
a) í guðfræðideild 4, b) í læknadeild 16, c) í lagadeild 6, d) í
heimspekideild 14, og er eitt þeirra embætti forstöðumanns Hand-
ritastofnunar íslands, sbr. lög nr. 36, 18. apríl 1962, 6. gr., e) í verk-
fræði- og raunvísindadeild 6, f) í viðskiptadeild 4.
Ný prófessorsembætti verða stofnuð með lögum eða með ákvörð-
un menntamálaráðherra, að fengnum tillögum háskólaráðs og há-
skóladeildar, þegar fé er veitt til á fjárlögum.
24. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi, og fellur þá jafnframt úr gildi 1. gr.
laga nr. 27 29. apríl 1967, um breytingu á lögum nr. 60 7. júní 1957,
um Háskóla íslands.
Fulltrúi, er Félag háskólakennara nefnir til setu í háskólaráði,
tekur sæti þar 1. maí 1969 og sama er um annan fulltrúa, sem
Stúdentaráð Háskóla íslands tilnefnir. Frá sama tíma tekur annar
fulltrúi stúdenta á deildarfundi sæti þar.
Þegar lög þessi hafa öðlazt gildi, skal fella ákvæði þeirra inn í
meginmál laga nr. 60 7. júní 1957, um Háskóla Islands, með áorðnum
breytingum og gefa þau út svo breytt.
Ákvœöi til bráöabirgöa:
Við rektorskjör í maí 1969 skal veita félagi tannlæknanema kost
á að nefna einn fulltrúa, er atkvæðisrétt á um kosningu rektors.
Fulltrúar deildarfélaga, sem sæti eiga á fundum háskóladeilda við