Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 185
183
alls 54 bókaðir. — Auk þessara venjulegu íunda var efnt til fundar
með formanni háskólanefndar Jónasi H. Haralz og Ármanni Snævarr,
háskólarektor. — Stjórn ráðsins fór á fund með háskólaráðsmönn-
um, formönnum deildarfélaga, háskólarektor og menntamálaráðherra.
— Enn eru svo ótaldir fundir fastanefnda Stúdentaráðs og smærri
nefnda.
Atvinnumál.
Er sumarið 1968 fór í hönd, var auglýst eftir atvinnulausum stúd-
entum og atvinnurekendum í leit að vinnukrafti jafnframt bent á
að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs. Milli 10 og 15 stúd-
entar gáfu sig fram, og tókst að veita flestum einhverja úrlausn.
Barnáheimili.
Barnagæzlumál stúdenta urðu brýnt viðfangsefni vegna sérstakra
ráðstafana á barnaheimilum Sumargjafar. Ríkið fékkst til að kaupa
húseignina Efri-Hlíð af Reykjavíkurborg og afhenda stúdentum til
barnaheimilisreksturs. Félagsstofnun stúdenta tók síðar við rekstri
barnaheimilisins. í úthlutunarnefnd barnaheimilisrýmis voru skipaðir
Þorkell Guðbrandsson, stud. med., Ingólfur Hjartarson, stud. jur. og
Jóhannes L. L. Helgason, háskólaritari.
Fclagsstofnun stúdenta.
Þegar þetta Stúdentaráð tók við, var nýbúið að afgreiða frá Al-
þingi lög um Félagsstofnun stúdenta. Eitt fyrsta verk ráðsins var
því að skipa fulltrúa stúdenta í stjórn félagsstofnunarinnar. Þessir
voru skipaðir: Aðalmenn: Þorvaldur Búason, mag. scient., Guð-
mundur Þorgeirsson, stud. med., Björn Bjarnason, stud. jur. Vara-
menn: Steinar Berg Björnsson, cand. oecon., Guðm. Pálmi Kristins-
son, stud. polyt., Valur Valsson, stud. oecon.
Stúdentaráð hafði síðan forgöngu um boðun fyrsta fundar, og þar
var Þorvaldur Búason kosinn formaður stjórnarinnar.
Stúdentaheimiliö.
Við lok háskólaársins 1967—1968 veitti háskólaráð af miklum
rausnarskap 5 millj. kr. styrk til byggingar stúdentaheimilis sem
eins konar tannfé til Félagsstofnunar, og hafði fjármálaráðherra
gefið góð orð um samsvarandi framlag af ríkisfé. Með nýrri kostn-
aðaráætlun kom í Ijós, að þrátt fyrir þessi framlög vantaði enn 11
millj. til að nægilegt fjármagn væri fyrir hendi til að fullgera heim-
ilið. Samkvæmt tillögu fjármálaráðherra féllst háskólaráð á að
leggja fram helming þessarar viðbótarupphæðar, en þegar þetta er