Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 30
28
en háskólabókasafn hætti þó ekki tilvist sinni sem stofnun og hafi
sitt starfslið. Það er alger forsenda fyrir fylgi háskólaráðs við
þessa hugmynd, að lestrarrými fyrir eigi minna en 500 stúdenta
verði komið upp í fyrsta áfanga byggingarframkvæmda. Vafa-
laust vinnst mikið með þessari samvinnu. Hitt er ljóst, að þarna
er ekki um fullkominn samruna að ræða, svo sem greint var, og
hitt er skýrt, að rannsóknarstofnanir verða að hafa sín eigin sér-
hæfðu bókasöfn. Lestrarsalir og semínarstofur verða enn fremur
að búa yfir nokkrum bókakosti, en lestrarsalir verða vitaskuld
víðar en á aðalbókasafni, og þá einkum sérlestrarsalir. Verða nú
góðir menn að leggjast á eina sveif um að vinna að framgangi
þjóðbókasafnsmálsins, og það er einlæg von mín, að íslenzk þjóð
beri gæfu til að reisa slíka byggingu á næstu árum í minningu
1100 ára afmælis Islandsbyggðar, en þá væri hæfilegast unnið að
þessu máli, að fyrsti áfangi bókasafnsbyggingar væri tilbúinn
og hann vígður árið 1974. Þess verða Háskólans menn að gæta,
að jafnvel þótt glæstustu vonir um byggingarhraða þessarar
byggingar rættust, dugir ekki að sitja auðum höndum. Lestrar-
salsþörfin er svo brýn, að enga bið þolir að leysa hana, þ. á m.
með leiguhúsnæði nú í svip. Hafa stúdentar framkvæmt athygl-
isverða könnun á þessu máli, sem er mikilsmetin af stjórn Há-
skólans, og leiðir hún í ljós, að u. þ. b. 70% af stúdentum Há-
skólans óskar eftir lestrarsalsaðstöðu. Fyrir gengi stúdenta í
námi skiptir mjög miklu máli að eiga kost á að sitja á lestrar-
sölum með viðunandi bókakosti og bókasafnsþjónustu, og er þetta
mál eitt meðal hinna mörgu brýnu verkefna Háskólans. Að úr-
bótum í málefnum háskólabókasafns verður einnig að vinna af
fullum krafti, og hefir háskólaráð sett fram óskir um stór-
auknar fjárveitingar til safnsins, bæði til bókakaupa og bættr-
ar þjónustu við notendur safnsins.
VL
Á þessu háskólaári hefir verið mikið rætt um nýjar menntun-
arleiðir hér við Háskólann. Það er raunar ekkert nýtt mál, því að
ég hefi t. d. allar götur síðan 1964 rætt hugmyndir í þessum efn-
um á ári hverju hér í háskólaræðum mínum. Tillögur um kennslu