Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 209
207
Heilsugæzla stúdenta.
í nóvember 1968 var þeirri hugmynd hreyft innan stjómar félags-
stofnunar, hvort ekki væri æskilegt að koma á fót sálfræðiþjónustu
fyrir stúdenta með líku sniði og dæmi eru um erlendis. Var leitað
álits sérfróðra manna um málið.
Varð þetta upphaf að athugun á læknisþjónustu fyrir stúdenta al-
mennt. í ljós kom, að þau mál höfðu oftar en einu sinni verið rædd
á íundum háskólaráðs.
Um áramótin 1968/1969 barst bréf frá háskólarektor þess efnis,
að háskólaráð hefði samþykkt að setja nefnd til að „kanna og gera
tillögur um nýja skipan á heilbrigðisþjónustu stúdenta". Þar á meðal
átti að huga að geðrænni heilsugæzlu fyrir stúdenta. Félagsstofnun
var boðið að skipa einn mann í nefndina, og var Gunnar Sigurðsson,
stud. med., skipaður.
Fjölritunarþjónusta.
Verkfræðideild fór þess á leit við félagsstofnun, að hún tæki að
sér að reka fjölritunartæki, sem deildin keypti árið 1968. Tók stofn-
unin verkið að sér með vissum skilyrðum. Tók skrifstofa félagsstofn-
unar við verkefnum, en tækin eru í Árnagarði.
Þeirri fyrirspurn var beint til háskólans, hvort hann ætli sjálfur
að annast slíka þjónustu. Því var jafnframt lýst yfir af félagsstofnun,
að hún væri reiðubúin að auka starfsemi sína á þessum vettvangi,
teldi hún rekstrargrundvöll tryggan. Háskólaráð svaraði fyrirspum-
inni á þann veg, að háskólinn myndi taka að sér fjölritunarþjónust-
una í ársbyrjun 1970.
Háskólaforlag.
Háskólaráð skipaði á liðnu sumri nefnd til að kanna hugsanlegt
háskólaforlag o. fl. Samkvæmt tilmælum ráðsins kaus stjórn félags-
stofnunar einn fulltrúa sinn í þessa nefnd, Þorvald Búason. Nefndin
hefur ekki enn verið kölluð saman.
Tillögur til háskólanefndar.
í ársbyrjun 1969 vann stjórnin að gerð tillagna Félagsstofnunar
stúdenta til háskólanefndar. í þeim var gerð grein fyrir starfsvett-
vangi, núverandi rekstri og framtíðarverkefnum félagsstofnunar.
Undirnefnd háskólanefndar fékk skýrsluna til úrvinnslu.
Aðild að byggingarnefndum háskólans.
Stjórn félagsstofnunar hefur farið þess á leit við háskólaráð að fá
framvegis aðild að byggingarnefndum háskólans. Ráðið hefur fallizt