Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 176
174
lega tiltekna deild, og skal háskólaráð þá leita álits deildarinnar,
áður en það lætur uppi umsögn sína.
Háskólinn á stjórnarfarslega undir menntamálaráðherra.
2. gr.
3. gr. 1. málsgr. laganna orðist svo:
Rektor er kjörinn til þriggja ára í senn, og eru prófessorar einir
kjörgengir. Atkvæðisrétt eiga prófessorar og aðrir þeir, sem fast-
ráðnir eru til fulls kennslustarfs. Þá eiga atkvæðisrétt fulltrúar stúd-
enta í háskólaráði og einn fulltrúi stúdenta á fundum háskóladeilda
eftir ákvörðun aðalfunda í viðkomandi deildarfélagi stúdenta, svo
og formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands.
3. gr.
4. gr. orðist svo:
í háskólaráði eiga sæti rektor, forsetar háskóladeildanna, tveir
fulltrúar stúdenta, tilnefndir af stúdentaráði, og einn fulltrúi, sem
tilnefndur er á almennum félagsfundi í Félagi háskólakennara úr
hópi þeirra félagsmanna, sem ekki eru kjörgengir til starfa deildar-
forseta. Háskólaritari á einnig sæti á fundum ráðsins og hefur þar
málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt. Rektor er forseti ráðs-
ins, en varaforseta og ritara kýs ráðið úr hópi deildarforseta til
eins árs í senn.
Nú má deildarforseti ekki sækja fund vegna forfalla eða af öðr-
um ástæðum og tekur þá sá kennari, sem kosinn hefur verið deild-
arforseti til vara, sbr. 13. gr., sæti hans í ráðinu. Ef þess manns
nýtur ekki, kveður rektor til fundarsetu þann prófessor úr deild
þeirri, sem í hlut á, er lengst hefur gegnt kennaraembætti í deildinni.
Sömu reglur gilda, er deildarforseti gegnir rektorsstörfum í viðlög-
um, sbr. 3. gr.
Nú mega fulltrúar stúdenta eða fulltrúi, er Félag háskólakennara
tilnefnir, ekki sækja fund háskólaráðs, og taka varamenn þeirra,
sem nefndir eru með sama hætti og aðalmenn, þá sæti þess, sem
forfallaður er.
4. gr.
5. gr. 2. málsgr. orðist svo:
Háskólaráð er ekki ályktunarfært, nema tveir þriðju hlutar at-
kvæðisbærra háskólaráðsmanna sæki fund hið fæsta. Afl atkvæða
ræður úrslitum mála. Ef atkvæði eru jöfn, sker atkvæði rektors úr
eða þess, er gegnir forsetastörfum.
5. gr.
7. gr. 1. málsgr. orðist svo: